Gæsluvöllur/róló á Smáralundi í sumar
Gæsluvöllur/róló verður opinn vikurnar 22. júlí – 26. júlí og 29. júlí – 2. ágúst á Smáralundi í sumar.
Gæsluvöllur/róló á Smáralundi í sumar
Í sumar verður starfræktur gæsluvöllur/róló við leikskólann Smáralund, Smárabarði 1. Gæsluvöllurinn verður opinn frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00, vikurnar 22. júlí – 26. júlí og 29. júlí – 2. ágúst. Gæsluvöllurinn er fyrir börn á aldrinum 3-5 ára (fædd 2021-2019). Hægt er að skrá sig í gegnum Völu og kaupa 5 eða 10 skipta kort. Eitt skipti af korti jafngildir vistun fyrir eða eftir hádegi (1 skipti af korti = að hámarki 3 klst. vistun).
Almennar upplýsingar til foreldra
- Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri.
- Gæsluvöllurinn er einungis ætlaður til útileikja og getur ekki komið í stað leikskóla.
- Ráðlagt er að hafa ung börn ekki lengur en 1,5 klst. í senn á dag.
- Ekki eru aðstæður til að skipta á börnum og því verða þau að geta notað salernið sjálf.
- Gott er að hafa meðferðis vatnsbrúsa og létta hressingu.
Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að fylla út eftirfarandi spurningalista og merkja við fyrirhugaða mætingu hér.
Umsjónarstýra námskeiðsins:
Sigríður Diljá Vilhjálmsdóttir, sími 664-7123.
Hlökkum til að sjá ykkur!