Gámar fyrir garðaúrgang við grunnskóla 21. – 25. maí

Fréttir

Sú breyting verður á hreinsunardögunum í ár að settir verða upp gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 21. maí til kl. 17 sunnudaginn 24. maí. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þjónustuna. 

Garðaúrgangur sóttur í hverfisgáma

Sú breyting verður á hreinsunardögunum í ár að settir verða upp gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 21. maí til kl. 17 sunnudaginn 24. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum í gáminn. Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar.

Dagana 21. maí – 24. maí standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við grunnskóla hverfisins. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð. Hreinsunardagar eru þegar hafnir hjá mörgum íbúum enda hefur veður, meiri viðvera heima við og staðan í samfélaginu ýtt undir framkvæmdagleði og löngun í útiveru. 

Sjá opnunartíma Sorpu að Breiðhellu hér

Breyting á fyrirkomulagi hreinsunar milli ára

Síðustu ár hefur garðúrgangur verið sóttur heim til íbúa en í ljósi aðstæðna í ár hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi og framkvæmd þjónustunnar. Fordæmalausir tímar kalla á aukna varfærni og sóttvarnir auk þess sem tilvist þjónustunnar hefur verið til umræðu síðustu misseri. Vonir standa til þess að breytt fyrirkomulag nú í ár leiði til þess að magn plastpoka og urðun tengd garðhreinsun minnki og að endurnýting og moltugerð aukist. Þannig verði breytingin jafnframt liður í því að minnka losun og mengun heilt yfir. Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir og margnota poka.

Skyldur lóðareigenda

Að gefnu tilefni er sérstök athygli vakin á því að lóðarhöfum er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka . Trjágróðurinn getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Eins er lóðareigendum bent á að ákveðnar reglur gilda um byggingu á skjólvegg og grindverki innan lóðar sem vert er að kynna sér áður en farið er af stað.

Hreinsum Hafnarfjörð!

Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!

Ábendingagátt