Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sú breyting verður á hreinsunardögunum í ár að settir verða upp gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Gámarnir verða við skólana frá miðvikudeginum 20. maí til miðnættis laugardaginn 23. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu.
Sú breyting verður á hreinsunardögunum í ár að settir verða upp gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 21. maí til kl. 17 sunnudaginn 24. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum í gáminn. Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar.
Dagana 21. maí – 24. maí standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við grunnskóla hverfisins. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð. Hreinsunardagar eru þegar hafnir hjá mörgum íbúum enda hefur veður, meiri viðvera heima við og staðan í samfélaginu ýtt undir framkvæmdagleði og löngun í útiveru. Íbúar sem nú þegar eru komnir með poka við lóðarmörkin eru vinsamlega beðnir um að fara með pokana beint á Sorpu eða sýna biðlund þar til gámum verður komið upp við skólana fimmtudaginn 21. maí.
Sjá opnunartíma á Sorpu Breiðhellu hér
Breyting á fyrirkomulagi hreinsunar milli ára
Síðustu ár hefur garðúrgangur verið sóttur heim til íbúa en í ljósi aðstæðna í ár hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi og framkvæmd þjónustunnar. Fordæmalausir tímar kalla á aukna varfærni og sóttvarnir auk þess sem tilvist þjónustunnar hefur verið til umræðu síðustu misseri. Vonir standa til þess að breytt fyrirkomulag nú í ár leiði til þess að magn plastpoka og urðun tengd garðhreinsun minnki og að endurnýting og moltugerð aukist. Þannig verði breytingin jafnframt liður í því að minnka losun og mengun heilt yfir. Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir og margnota poka.
Skyldur lóðareigenda
Að gefnu tilefni er sérstök athygli vakin á því að lóðarhöfum er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka . Trjágróðurinn getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Eins er lóðareigendum bent á að ákveðnar reglur gilda um byggingu á skjólvegg og grindverki innan lóðar sem vert er að kynna sér áður en farið er af stað.
Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…