Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á undanförnum mánuðum hefur farið fram vinna í starfshópi við vinnulag við gerð menntastefnu Hafnarfjarðar og samþykkt í fræðsluráði að hefja vinnu við gerð sjálfrar menntastefnunnar nú á haustdögum. Menntastefna Hafnarfjarðar á að hafa samhljóm með gildandi lögum og reglugerðum sem gilda um nám, kennslu, frístundastarf og alla almenna vellíðan og þroska barna og ungmenna í Hafnarfirði.
Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar leggur nú af stað með vinnu við frekari stefnumörkun í menntamálum í Hafnarfirði. Vinnulag við gerð stefnunnar miðast við samvinnu allra hagsmunaaðila með áherslu á samræðu, endurgjöf og samstöðu um leiðir. Markmið stefnumótunarinnar er að styðja frekar við nám nemenda, þroska og ekki síst vellíðan sem forsenda náms. Menntastefnan skal ýta undir mikilvægar breytingar og merkingarbærar nýjungar sem hluti jákvæðrar skólaþróunar. Auk þess að leggja fram tillögur til bættra starfsaðstæðna í skólum þ.e. starfsumhverfi nemenda og starfsmanna.
Menntastefnan á að endurspegla væntingar nemenda, starfsfólks og íbúa til náms, vellíðunar og í því að efla einstaklinginn til að uppfylla þarfir sínar til að vaxa og dafna í samfélaginu. Menntastefna Hafnarfjarðar skal unnin í anda lærdómssamfélags þar sem byggt verður á forgangsröðun með áherslu á alhliða þroska, velferð og hæfniþætti sem leggja grunn að menntun í víðum skilningi. Lykillinn að farsælli menntastefnu er mikið og gott samtal og samvinna við alla þá hagsmunahópa sem menntastefna heyrir til.
Haldnir verða samráðsfundir, rýnihópafundir og kynningarfundir með nemendum, starfsfólki, foreldrum og hagsmunaaðilum þar sem óskað er eftir aðkomu allra á einn eða annan hátt á meðan á ferlinu stendur.Þann 24. september verður aðilum skólasamfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum boðið á kynningarfund þar sem verkefnið verður kynnt og útlistað frekar. Annar fundurinn verður kl. 15:00-15:45 í Víðistaðaskóla (starfsstöð við Hrauntungu) og hinn kl. 17:15 – 18:00 í Hraunvallaskóla. Um er að ræða sama efni á báðum fundum.
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…