Gjaldskrárhækkun Strætó

Fréttir

Á fundi stjórnar Strætó bs. 9. desember sl. var samþykkt að hækka gjaldskrá Strætó í takt við almenna verðlagshækkun á rekstrarkostnaði Strætó. Ný gjaldskrá mun taka gildi 3. janúar 2017.

Á fundi stjórnar Strætó bs. 9. desember sl. var samþykkt að
hækka gjaldskrá Strætó í takt við almenna verðlagshækkun á rekstrarkostnaði
Strætó. Í rekstri Strætó vegur hækkun á launakostnaði og olíuverði um 70% af
heildar rekstrarkostnaði.

Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu verða
440 kr., sem er hækkun um 4,8%, en staðgreiðsla og stakt fargjald í appinu
fyrir börn yngri en 18 ára, aldraða og öryrkja verða óbreytt. Önnur
fargjaldaform eins og farmiðar og kort hækka í kringum 4,0%.  

Ný gjaldskrá Strætó mun taka gildi 3. janúar 2017.

Í eigendastefnu Strætó sem samþykkt var í apríl 2013 kemur
fram að stefnt skuli að því að fargjaldatekjur standi undir allt að 40% af
almennum rekstrarkostnaði Strætó. Í dag standa fargjaldatekjur undir um 32% af
almennum rekstrarkostnaði félagsins.

Upplýsingar um nýja gjaldskrá er að finna á vef Strætó www.straeto.is

Allar nánari upplýsingar veita Jóhannes Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Strætó í síma 660 1488 og Heiða Björg Hilmisdóttir,
stjórnarformaður Strætó í síma 661 2205.

Ábendingagátt