Gjaldtaka á bílastæðum við Seltún 

Tilkynningar

Gjaldtaka hefst á bílastæðum við Seltún í Krýsuvík, óviðjafnanlegri náttúruperlu í landi Hafnarfjarðar, og stefnt á að hefja hana þann 1. júní.

Gjaldtaka hefst við Seltún

Stefnt er að því að gjaldtaka hefjist á bílastæðum við Seltún í Krýsuvík, óviðjafnanlegri náttúruperlu í landi Hafnarfjarðar, þann 1. júní. Þá kostar 750 krónur fyrir fólksbíla og 1500 krónur fyrir rútur. Fjármunirnir verða nýttir til að styrkja svæðið, viðhalda og vernda. 

Seltún er ein fegursta náttúruperla landsins. Það er virkt sprengigíga- og borholusvæði. Þar eru gönguleiðir og malarstígar. Fjölbreytt litadýrð náttúrunnar á hverasvæðinu við Seltún heillar marga.  

Viðhald á stígum og uppbygging gönguleiða á þessum vinsæla ferðamannastað er forgangsatriði Hafnarfjarðarbæjar. Þar er einnig salernisaðstaða á sumrin. 

  • Skiptir máli hve lengi stoppað er? Eftir 3 mínútur verður tekið gjald og gjaldið dugir þangað til að farið er af svæðinu. 
  • Hvernig fer gjaldtakan fram? Hægt verður að greiða í appi og/eða sjóðvél sem verður á staðnum. Fyrirkomulagið er það sama og meðal annars á Þingvöllum. 
Ábendingagátt