Gjöf frá Áslandsskóla til Mæðrastyrksnefndar
Undanfarin fjórtán ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Í ár söfnuðust 370.000.- krónur.
Undanfarin fjórtán ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla
styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Ásta
Eyjólfsdóttir, formaður nefndarinnar, heimsótti Áslandsskóla í morgun og tók formlega á móti gjöfinni úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra. Nemendur í 5. bekk skólans voru viðstaddir og fengu m.a. fræðslu um hvað verður
um þá fjármuni sem safnast. Í ár söfnuðust 370.000.- krónur.

Samfélagsþjónusta er ein af hornstoðum skólans
Á fjórtán árum hefur skólasamfélagið í Áslandi styrkt
Mæðrastyrksnefnd um alls 3.499.532.- krónur. Þessi hugsun skólasamfélagsins til þeirra sem minna mega sín tengist einni
af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið. Ánægjulegt er að segja frá því að fleiri skólar í Hafnarfirði hafa fylgt
fordæmi skólans og styrkja nú gott málefni í stað pakkaleikja.