Glæný molta án endurgjalds

Fréttir

Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá og með deginum í dag á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.

Molta án endurgjalds fyrir þig!

Við íbúar Hafnarfjarðar höfum staðið okkur stórvel við að flokka matarleifarnar og getum því notið afrakstursins og fengið moltu úr GAJU, gas- og jarðgerðarstöð SORPU án endurgjalds. Moltan fæst frá og með morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.  Molta er öflugur og hollur jarðvegsbætir sem nærir jarðveginn. Hún er ólík mold að því leiti að hún inniheldur ekki nein ólífræn efni, eins og sand eða möl.

Hringrásin byrjar í eldhúsinu

Eins og SORPA orðar það er GAJA molta ætluð til notkunar utanhúss. Hún henti vel til notkunar á akra, lóðir, græn svæði í þéttbýli, beð og matjurtagarða. Moltan sé sterk og bein snerting óblandaðrar moltu við rætur plantna sé ekki æskileg. GAJA molta er framleidd í samræmi við starfsleyfi Matvælastofnunar og skráð sem lífrænn áburður. Já, hringrásin byrjar í eldhúsinu. Þið sem eigið leið víðar um höfuðborgarsvæðið getið einnig sótt moltu á fleiri staði. Hana má fá á endurvinnslustöðvum SORPU við Breiðhellu, Sævarhöfða og Ánanaust.
Takk fyrir að flokka matarleifar. Það er sannarlega þess virði!
Ábendingagátt