Glænýir styrkir til að efla hafnfirska kóra
Ertu í kór? Langar þig að tryggja ævintýralegar minningar? Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum í glænýjan kórsjóð.
Hafnfirskir kórar efldir
Ertu í kór? Langar þig að tryggja ævintýralegar minningar? Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum í glænýjan kórsjóð.
Markmið sjóðsins er að efla kórstarf í Hafnarfirði og styrkja þau menningarverðmæti, samfélagslegu áhrif, félagslega líðan og listsköpun sem fylgja reglubundnu kórstarfi. Heimilt er að gera samninga til allt að þriggja ára. Allt að tveimur milljónum er úthlutað árlega.
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, formaður menningar- og ferðamálanefndar, segir skipta máli að efla kóra Hafnarfjarðar. „Það er lýðheilsumál, andlegt konfekt fyrir fólkið sem þar starfar og svo hlustar. Þetta eru merkilegar menningarstofnanir,“ segir hún.
„Reksturinn þeirra hefur ekki verið tryggur en með þessu framlagi sýnum við í verki að kórarnir eru mikilvægur hlekkur í menningarlífi bæjarins. Ég vona að þetta framlag okkar í Hafnarfirði verði hvatning fyrir önnur sveitarfélög að efla og styðja við kórastarf um allt land.“
Sjóðurinn leggur áherslu á að styrkja sjálfbært, fjölbreytt og öflugt kóralíf fyrir bæjarbúa á öllum aldri, í samræmi við menningarstefnu Hafnarfjarðar. Veittir verða almennir rekstrar- og starfsemisstyrkir til kóra sem starfa í Hafnarfirði. Kórar sem sækja um skulu:
- Tengjast Hafnarfirði með fastri starfsemi
- Vera með reglubundnar æfingar og virkt kórastarf
- Hafa sannað gildi sit í samfélaginu og menningarlífi bæjarins
- Starfa í samræmi við markmiði kórsjóðs Hafnarfjarðar
Og takið eftir: Hvorki er veittur styrkur til ferðalaga né til náms eða endurmenntunar einstaklinga. Heldur ekki til einstaka viðburða.
Hvernig ber að bera sig að? Umsóknum skal skilað með rafrænum hætti í gegnum vef Hafnarfjarðarbæjar – hér. Úthlutað er reglulega úr sjóðnum. Hvetjum kóra til að sækja um fyrir 16. mars svo koma megi sjóðnum vel af stað.
- Sjáðu nánar kröfur og til hvers er horft hér
- Umsóknir eru teknar fyrir á fundum Menningar- og ferðamálanefndar
Já, það er mannbætandi að vera í kór.
Á mynd: Jón Ingi Hákonarson, Guðbjörg Oddný Jónasardóttir, Sigrid Foss, Valdimar Víðisson og Alexander Árnason.