Go Red á morgun – tökum þátt!

Fréttir

Febrúar er hjartamánuðurinn og við fögnum honum. Rauði dagurinn að þessu sinni er föstudagurinn 3. febrúar.  Landsmenn allir, stórir sem smáir, eru hvattir til að sýna lit og mæta í rauðu til vinnu og/eða skóla á morgun verkefninu til stuðnings.

Febrúar er hjartamánuðurinn
og við fögnum honum. Árið 2009 fór Ísland í samstarf með alþjóða
hjartasamtökunum og GoRed verkefninu með megináherslu á konur og
hjartasjúkdóma. Verkefnið hefur síðan þróast í gegnum árin og að
þessu sinni er allur mánuðurinn undir, efnið óháð kyni og aldri því
hjartaheilsa varðar alla. Rauði dagurinn að þessu sinni er föstudagurinn 3. febrúar.  Landsmenn allir, stórir sem smáir, eru hvattir til að sýna lit og mæta í rauðu til vinnu og/eða skóla á morgun.

Nokkrar byggingar verða lýstar rauðar í tilefni af
hjartamánuðinum: Landspítali, Háskóli Íslands, Rafveitustöðin í Elliðaárdal og
Harpa.

Mánuðurinn skiptist niður í fjögur efni:

  • Fyrsta vika:        Konur og hjartasjúkdómar
  • Önnur vika:        Hjartagallar
  • Þriðja vika:        Heilaæðasjúkdómar
  • Fjórða vika:        Forvarnir.

Fjallað verður um þessi efni í mismunandi fjölmiðlum
allan mánuðinn og félögin sem standa að átakinu munu einnig kynna sig og
starfsemi sína.

Allir sem taka virkan þátt í verkefninu – virk þátttaka er m.a. stuðningurinn og vitundarvakningin í því að mæta í rauðu þá Rauða daginn – eru hvattir til að setja inn
myndir á facebook átaksins – HÉR eða á twitter @gorediceland undir myllumerkinu #hjartaðmitt

Ábendingagátt