Göngum í skólann – tileinkum okkur virkan ferðamáta
Verkefnið Göngum í skólann hefst miðvikudaginn 6. september í sautjánda sinn og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum, miðvikudaginn 4. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Verkefnið stendur yfir dagana 6. september – 4. október
Verkefnið göngum í skólann (International Walk to School (iwalktoschool.org) hefst miðvikudaginn 6. september, í sautjánda sinn og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum, miðvikudaginn 4. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Þátttakendur í yfir 40 löndum
Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26, en alls 84 skólar skráðu sig til leiks árið 2022. Á vef verkefnisins – www.gongumiskolann.is – er að finna allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má meðal annars finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu auk ýmiss annars efnis frá þátttökuskólunum.
Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur alla skóla í Hafnarfirði, foreldra og börn til virkrar þátttöku í verkefninu næsta mánuðinn! Það er hollt og gott að ganga í skólann!
