Göturnar sópaðar í Hafnarfirði

Fréttir

Vorsópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði er hafin. Framvindan stýrist af veðri en stefnt er að því að ljúka því að sópa hverfin í lok mánaðar.

 

Götusóparinn er kominn á stjá 

Það styttist í sumarið og verður vorið nýtt í að fegra bæinn okkar svo hann standi undir nafni – Fjörðurinn fagri. Göturnar verða því sópaðar og snyrtar næstu vikurnar.
Götusópunin hófst um mánaðamótin. Næstu daga verður hvert hverfið á fætur öðru sópað. Bænum er skipt upp í 15 hverfi og hvert þeirra sópað á einum degi. Sópun innan hverfa í Hafnarfirði hófst í vikunni og mun framvindan stýrist framvinda af veðri.
Hér sjáum við áætlunina sem er fylgt:

Vertu viðbúin/n og taktu þátt

Sett eru upp skilti við hvert hverfi degi fyrir sópun ásamt því að íbúar búsettir í hverfinu eiga að fá smáskilaboð um að þeirra hverfi verður sópað.
Það eru vinsamleg tilmæli til íbúa að taka virkan þátt þannig að árangurinn verði sem bestur. Nauðsynlegt er að hafa götur auðar af bílum þann dag sem sópað er þannig að mögulegt sé að sópa kantanna á milli.
  • Íbúar og starfsfólk fyrirtækja geta samhliða nýtt tækifærið og sópað í kring hjá sér. Þannig verður heildin miklu fallegri ásýndar.
Um leið og hverfasópun er lokið verður farið í háþrýstiþvott, sópun á aðalgötum og helstu safngötum ásamt miðeyjum. Verkáætlun er sett fram með fyrirvara um breytingar sem einna helst geta orðið vegna veðurs (frost) og seinkunnar hjá verktaka sem sér um sópunina.
 Já, njótum þess að hlusta á götusóparana og sjá göturnar okkar skínandi fínar!
Ábendingagátt