Göturnar sópaðar í Hafnarfirði

Fréttir óflokkað Tilkynningar

Lykilleiðir eru þessa dagana sópaðar í Hafnarfirði – þegar færi gefst. Framvindan stýrist af veðri en frostið dregur úr framkvæmdahraðanum.

Götusóparinn er kominn á stjá 

Ráðist hefur verið í að sópa lykilleiðir bæjarins til að berjast við svifryk og hreinsa aðalgöturnar. Aðrar götur bíða betri tíðar. Við götusópun þurfa göturnar að vera þíðar svo vel takist til og ekki skapist hætta á götum bæjarins. Frostið dregur því úr framkvæmdahraðanum.
Allar götur Hafnarfjarðarbæjar eru sópaðar að jafnaði tvisvar sinnum á ári, aðalgöturnar oftar. Voráætlun hefst þegar ólíklega muni snjóa eða frysta meir þann veturinn.
Ábendingagátt