Grænn dagur: Hjörtu Hafnarfjarðar græn í dag

Fréttir

Hjörtu Hafnarfjarðar eru græn í dag til minningar um litla drenginn Jökul Frosta sem lést aðeins fjögurra ára gamall árið 2021.  Dagurinn er fullur viðburða til að heiðra minningu hans og safna fjár­magni fyrir börn og unglinga í sorg.

Hjörtu Hafnarfjarðar græn í dag

Hjörtu Hafnarfjarðar eru græn í dag til minningar um litla drenginn Jökul Frosta sem lést aðeins fjögurra ára gamall árið 2021. Hann hefði orðið 9 ára í dag. Dagurinn er fullur viðburða til að heiðra minningu hans og safna fjár­magni fyrir börn og unglinga í sorg.

Dag­skrá dagsins 

Staðsetning: World Class Tjarnarvöllum 7 í Hafnarfirði

  • Æfingu dagsins:
    • Sér­sniðin æfing þar sem tak­markað magn getur tekið þátt en við mælum með að mæta og fylgjast með. Allir eru velkomnir. Tekið verður gjald fyrir skráningu á æfingu.
    • Skráning hér
  • Tónlistaratriði:
    • Nokkrir af þekktustu tónlistar­mönnum landsins koma fram og skapa einstaka stemmningu.
  • Andlits­málning og fleira fyrir börn:
    • Skemmtileg af­þreying fyrir litlu gestina okkar.
  • Sala á „Græna dags“ vörum:
    • Minja­gripir til þess að styðja við minninguna og mál­efnið.

Aðgangur er ókeypis, og tekið verður við frjálsum fram­lögum á staðnum, allur ágóði rennur til mál­efna sem styðja við börn og unglinga.

Eins og forsvarsmennirnir segja: Dagur­inn snýst um gleði, sam­kennd og jákvæða orku. Við hjá Hafnarfjarðarbæ sendum hlýja strauma.

 

Ábendingagátt