Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Húsfyllir var á Bókasafni Hafnarfjarðar um helgina þegar Pólverjar og vinir Pólverja í Hafnarfirði og víðar fögnuðu þjóðhátíðardegi Póllands. Pólska samfélagið í Hafnarfirði er öflugt og tengslin við m.a. Bókasafn Hafnarfjarðar mikil sem endurspeglast hvað best í bókakosti, viðburðum, samstarfi og samverustundum á pólsku.
Húsfyllir var á Bókasafni Hafnarfjarðar um helgina þegar Pólverjar og vinir Pólverja í Hafnarfirði og víðar fögnuðu þjóðhátíðardegi Póllands. Stór hluti íslensku þjóðarinnar, eða um 25.000 manns, eiga rætur að rekja til Póllands og stærsti hluti erlendra ríkisborgara búsettir í Hafnarfirði er frá Póllandi. Pólska samfélagið í Hafnarfirði er öflugt og tengslin við m.a. Bókasafn Hafnarfjarðar mikil sem endurspeglast hvað best í bókakosti, viðburðum, samstarfi og samverustundum á pólsku.
11. nóvember er mikilvægur og stór hátíðardagur í Póllandi. Á þessum degi fagna Pólverjar stofnun hins frjálsa Póllands sem endurheimti sjálfstæði sitt þennan dag, eftir 124 ár af hernámi annarra þjóða. Í tilefni dagsins var boðið til þjóðhátíðarveislu á Bókasafni Hafnarfjarðar og mættu rúmlega 300 gestir til leiks og fengu kynningu á deginum, tilurð hans og sögu. Flutningar Pólverja til m.a. Hafnarfjarðar hafa að stærstum hluta tengst vinnu og margir komu til landsins með tímabundna dvöl og vinnu í huga en hafa ílengst og margir hverjir sest að á Íslandi til frambúðar, auk þess sem að nú vex upp þriðja kynslóð Pólverja á Íslandi, tvítyngd börn og fullorðnir jafnt.
Fjöldi gesta mætti til þjóðhátíðarveislu í Bókasafni Hafnarfjarðar
Á þjóðhátíðarfögnuði var boðið upp á kaffi og kruðerí, sungið og farið með ljóð, auk þess sem að barnakór mætti frá PERSONA – pólskumælandi leikskóla. Einnig var sýnd myndin „Ég er pólsk“, stuttmynd þar sem hin unga Vanessa talar um líf sitt og samfélagið í kringum sig. Vanessa er ein af þeim fjölmörgu pólskumælandi börnum sem búa á Íslandi, og þekkja Ísland eitt sem heimili – en stundum leitar hjartað annað, sérstaklega þegar hún lítur í augu móður sinnar. Pólska bókasafnið í Hafnarfirði á heiðurinn að myndbandinu og þar spilaði pólski bókavörðurinn og starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar Kasia Chojnowska stórt og mikilvægt hlutverk.
Pólverjar í Hafnarfirði eru mikilvægur hluti af hafnfirsku samfélagi og hefur Hafnarfjarðarbær lagt ríka áherslu á að aðstoða Pólverja, líkt og önnur þjóðerni, við að kynnast samfélaginu, ýta undir virka þátttöku með skipulagningu viðburða á pólsku og með því að búa til vettvang sem m.a. Pólverjar geta nýtt til að hittast, vera saman og búa til eigin viðburði og skemmtun sem m.a. tengjast heimahögunum og pólskum hefðum.
Takk Kassabókasafnið á Ólafsvík, Pólski leikskólinn og Bókasafn Hafnarfjarðar fyrir lán á myndum og myndbrotum.
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…
Nýsköpunarsetrið við Lækinn hefur fengið nýjan forstöðumann sem mótar nú starfsemina og stefnir á að vera kominn á fullt skrið…