Grenndarkynning – lóðirnar Óseyrarbraut 25, 27 og 27B

Fréttir

Í grenndarkynningu er breyting á reit 5.4c í deiliskipulagi Suðurhafnar vegna lóðanna að Óseyrarbraut 25, 27 og 27B. Hægt er að skila inn skriflegum athugasemdum við breytinguna til 14. júlí.

Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar í Hafnarfirði vegna
lóðanna Óseyrarbraut 25, 27 og 27B.

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á
fundi sínum þann  13. júní 2017 að grenndarkynna
breytingu á reit 5.4c í deiliskipulagi Suðurhafnar vegna lóðanna að
Óseyrarbraut 25, 27 og 27B í Hafnarfirði í samræmi við 44. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin felst í því að stærðir lóðanna
þriggja breytast. Lóðamörk á milli Óseyrarbrautar 25 og 27 færast til austurs
um 10 metra og lóðamörk á milli Óseyrarbrautar 27 og 27B færast til austurs um
20 metra , eins og fram kemur á meðfylgjandi tillöguuppdrætti. Deiliskipulagsbreytingin verður grenndarkynnt frá 16. júní
til 14. júlí 2017. 

Hægt er að skoða tillöguna HÉR

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur
á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til
Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 14. júlí 2017. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins
frests, teljast samþykkir henni.

Ábendingagátt