Grenndarkynning – Óseyrarbraut 29

Fréttir

Í grenndarkynningu er breyting á deiliskipulagi lóðarinnar að Óseyrarbraut 29. Breytingin felst í að byggingarreitur, merktur B á lóð nr. 29 við Óseyrarbraut, lengist til austurs um 16,3m. Deiliskipulagsbreytingin verður grenndarkynnt frá 10. maí til 7. júní 2017. 

Breyting á deiliskipulagi lóðarinnar að Óseyrarbraut 29 í Hafnarfirði

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á
fundi sínum þann  25.apríl 2017 að
grenndarkynna deiliskipulagsbreytingu lóðarinnar að Óseyrarbraut 29 í
Hafnarfirði í samræmi við 44. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.

Breytingin felst í að byggingarreitur, merktur B á lóð
nr. 29 við Óseyrarbraut, lengist til austurs um 16.3m, eins og fram kemur á
meðfylgjandi tillögu /uppdrætti. Deiliskipulagsbreytingin verður grenndarkynnt frá 10. maí
til 7. júní 2017. 

Hægt er að skoða tillöguna HÉR

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur
á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 7. júní 2017. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins
frests, teljast samþykkir henni.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu, Norðurhellu 2.

Ábendingagátt