Grunnskólahátíð

Fréttir

Miðvikudaginn 6. febrúar fer fram Grunnskólahátíð í Hafnarfirði.

Miðvikudaginn 6. febrúar fer fram Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði. Félagsmiðstöðvarnar og skólarnir hafa staðið að þessu verkefni í áraraðir og það verið unglingum og verkefnum þeirra til sóma.

Um daginn verða leiksýningar í Gaflaraleikhúsinu kl. 11:30, 13:00 og 14:30. Þar sýna nemendur úr skólum bæjarins og leikhópur Gaflaraleikhússins afrakstur allskonar listtengdrar vinnu.

Um kvöldið mun dansleikur hefjast kl. 19:00 í Íþróttahúsinu Strandgötu og ljúka kl. 22:00. Fram koma Ragga Hólm, Flóni, Herra Hnetusmjör, MaxiXDaxi, Dj Englasálmar og sigurvegarar úr söngkeppni Hafnarfjarðar þau Sveinbjörg Júlía Kjartansdóttir, Jón Ragnar Einarsson og Erlendur Snær Erlendsson úr Hraunvallaskóla og Unnur Elín Sigursteinsdóttir úr Öldutúnsskóla.

Allir verða keyrðir heim að dansleik loknum.

Ábendingagátt