Gul veðurviðvörun með mikilli rigningu

Fréttir

Vakin er athygli á slæmu veðurútliti, en í kvöld og nótt (aðfaranótt sunnudags) er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi á höfuðborgarsvæðinu með talsverðri rigningu og hlýnandi veðri. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. 

Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns og er fólk eindregið hvatt til þess.
Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður hvassviðri/stormur frá kl. 23 í kvöld og fram til kl. 6 í nótt (aðfaranótt sunnudags) og gildir þá gul viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið á sama tíma.

Sjá hér: https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk

Ábendingagátt