Appelsínugul veðurviðvörun frá kl. 13:30 – 17:00 í dag

Fréttir

Skilaboð til foreldra og forráðamanna. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá kl. 13:30 – 17:00 í dag þriðjudaginn 21. september 2021

Skilaboð til foreldra og forráðamanna 

Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá kl. 13:30 – 17:00 í dag þriðjudaginn 21. september 2021. Nánar á vef Veðurstofu Íslands

Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum úr skólanum. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístunda­starfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.

Appelsinugul-IS-1080x1080

Leiðbeiningar fyrir foreldra og forráðamenn varðandi röskun á skólastarfi

Ábendingagátt