Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í Góðtemplarahúsinu hefur Byggðasafn Hafnarfjarðar sett upp sýninguna „Gúttó – Hús templara, vagga félags- og menningarlífs í 130 ár“.
Í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7, hefur Byggðasafn Hafnarfjarðar sett upp sýninguna „Gúttó – Hús templara, vagga félags- og menningarlífs í 130 ár“ þar sem ljósi er varpað á sögu Góðtemplarareglunnar í Hafnarfirði og því mikla félags- og menningarstarfi sem fram hefur farið í húsinu í gegnum tíðina.
Góðtemplarastúkan Daníelsher er elsta starfandi félag í Hafnarfirði og Góðtemplarahúsið elsta samkomuhús á landinu og er það nátengt öllu menningar- og félagsstarfi í bænum í gegnum tíðina. Hugmynd að byggingu Gúttó kom fram 4. október 1885 á fundi stúkunnar Morgunstjörnunnar og var húsið vígt 17. desember 1886 við mikil hátíðarhöld. Góðtemplarahúsið er fyrsta húsið sem Góðtemplarar reistu hér á landi fyrir starfsemi sína. Húsið þótti stórt, rúmaði um 300 manns og segir sagan að nær allir Hafnfirðingar hafi komist þar fyrir í einu en þá bjuggu rúmlega 400 manns í Hafnarfirði. Húsið var fyrsta eiginlega samkomuhús Hafnfirðinga og um langan tíma miðstöð allrar menningar í bænum. Þar fór fram mikið félagsstarf, fundir og skemmtanir, þar voru flutt leikrit og haldnar söngskemmtanir og dansleikir. Í húsinu var fyrsti fundur bæjarstjórnar haldinn og um 20 ára skeið var bæjarstjórn þar með fundi sína. Veturinn 1907-8 var kennaraskóli Flensborgarskólans í húsinu. Þar voru einnig stofnuð nokkur félög og af þeim má nefna Verkamannafélagið Hlíf og Sjómannafélag Hafnarfjarðar.
Sýningin – Gúttó – var opnuð á 108 ára afmælisdegi Hafnarfjarðarbæjar þann 1. júní síðastliðinn og verður hún opin allar helgar í sumar frá kl. 11 – 17. Aðgangur er ókeypis.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…