Hafnarfjarðarbær verðlaunaður af Evrópustofnuninni í opinberri þjónustu í Maastricth

Fréttir

EIPA, Evrópustofnunin í opinberri þjónustu, veitti í vikunni Hafnarfjarðarbæ EPSA viðurkenningu,  eða svokölluð European public sector award. Viðurkenningin er veitt verkefnum í opinberri þjónustu sem bera vott um góða starfshætti og nýstárlegar úrlausnir á krefjandi viðfangsefnum. 

EIPA, Evrópustofnunin í opinberri þjónustu, veitti í vikunni Hafnarfjarðarbæ EPSA viðurkenningu,  eða svokölluð European public sector award. Viðurkenningin er veitt verkefnum í opinberri þjónustu sem bera vott um góða starfshætti og nýstárlegar úrlausnir á krefjandi viðfangsefnum. Þema EPSA verðlaunanna árið 2017 var nýsköpun í opinberri þjónustu en viðurkenningin var veitt í Maastricht í Hollandi núna í vikunni. Stofnunni bárust alls 149 tilnefningar frá 30 aðildarlöndum í öllum geirum og þvert á málaflokka. Hafnfirska verkefnið sem hlaut þessa eftirsóttu viðurkenningu ber nafnið Geitungarnir, atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk.

“Við erum gríðarlega stolt af þessari viðurkenningu sem er er til marks um þann metnað og fagmennsku sem stjórnendur og starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sýna í störfum sínum. Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðar er virkilega vel að þessum verðlaunum komin og gott að sjá þetta frumkvöðlastarf í þjónustu við fatlað fólk vekja athygli á alþjóðlegum vettvangi. Það er gefandi að fá að starfa með skapandi fólki sem hefur auga fyrir nýjum lausnum og er tilbúið að leggja mikið á sig til að þær nái fram að ganga. Fyrir það erum við í fjölskylduráðinu bæði stolt og þakklát“ sagði Guðlaug Kristjánsdóttir forseti bæjarstjórnar og formaður fjölskylduráðs.

Verkefnið Geitungarnir, sem sett var á laggirnar haustið 2015, miðar að því að auka sveigjanleika í þjónustu við fatlað fólk varðandi atvinnu og félagslega virkni og að fatlað fólk fái tækifæri til fullrar þátttöku í samfélaginu á eigin forsendum. Markmið verkefnis er að auka nýsköpunar- og frumkvöðlastarf meðal fatlaðs fólks með  gildisaukandi félagslegu hlutverki í starfi og vinna þannig að breyttu viðhorfi samfélagsins til fatlaðs fólks.

Geitungana má finna á facebook (Geitungarnir vinnuhópur) og einnig verða þau nú þriðja árið í röð með sölubás í Jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar .

EIPA var stofnað árið 1981 í tilefni af fyrsta Evrópuráðsfundinum sem haldin var í Maastricht og er stofnunin studd af aðildarríkjum ESB og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Markmið samtakanna er að fulltrúar sem starfi innan opinberrar stjórnsýslu hafi vettvang til að mynda varanleg tengsl í gegnum starfsemina og vinnunni innan samtakanna er ætlað að efla gæði í stjórnsýslu.

Ábendingagátt