HAFNARFJARÐARBÆR BÆTIR KJÖR OG STARFSUMHVERFI Í LEIKSKÓLUM

Fréttir

Í nýsamþykktri fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2018 er lögð áhersla á að bæta starfsaðstæður í leikskólum og minnka álag á börn og starfsfólk. Undirbúnings- og yfirvinnustundum starfsmanna verður fjölgað á leikskólum og fá leikskólastjórar þannig aukið svigrúm til að koma til móts við þau fjölmörgu verkefni sem leikskólinn stendur frammi fyrir. 

Í nýsamþykktri fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2018
er lögð áhersla á að bæta starfsaðstæður í leikskólum og minnka álag á börn og
starfsfólk. Undirbúnings- og yfirvinnustundum starfsmanna verður fjölgað á
leikskólum og fá leikskólastjórar þannig aukið svigrúm til að koma til móts við
þau fjölmörgu verkefni sem leikskólinn stendur frammi fyrir. Stigin verða
fyrstu skrefin í því að auka rými barna á leikskólunum og er Hafnarfjarðarbær
að sýna frumkvæði í þeim efnum. Ný rýmisáætlun verður tekin upp með það að
leiðarljósi að færri börn verði í barnahópum inni á leikskólunum og er
þannig markvisst unnið að því að bæta starfsumhverfið fyrir kennara jafnt sem
börn. Starfshópur er nú farinn af stað sem gera á tillögur og leggja fram
aðgerðaráætlun til fræðsluráðs um hvernig bæta megi frekar vinnuumhverfi
barna og starfsmanna og minnka álag í leikskólum. 

 

 Aukin áhersla er lögð á að styðja við og auka faghlutfall í
leikskólum. Undirbúningstími fagfólks verður áfram sá sami og samið var um á
síðastliðnu fjárhagsári en þá var undirbúningstími aukinn um eina klukkustund
hjá deildarstjórum og því fagfólki sem er innan Kennarasambands Íslands
sömuleiðis. Nú verður bætt um betur í þennan þátt og fá allir leiðbeinendur
eina klukkustund í undirbúning á viku. Fjármagn í vettvangsferðir verður aukið
um 3 milljónir króna og til námsgagnakaupa um 2,5 milljónir króna.

 

Á sama tíma verða  leikskólagjöld óbreytt á
milli ára. Er þetta fimmta árið í röð sem dvalargjöld á leikskólum bæjarins
hafa ekki hækkað, eða frá árinu 2014. Áfram verður stutt við
starfsmenn leikskóla í réttindanámi til B.Ed.-prófs í leikskólakennarafræðum
með afleysingu þegar starfsfólk sækir nám á vinnutíma. Þessa aðgerðir og fleiri koma til. 

Ábendingagátt