Hafnarfjarðarbær fær grænar greinar Orkusölunnar

Fréttir

Orkusalan kom færandi hendi á dögunum og afhenti Hafnarfjarðarbæ grænar greinar Orkusölunnar en verkefnið er fyrst og fremst hugsað til skemmtunar og vitundarvakningar. Væntanlegir íbúar á nýjum búsetukjarna í Hafnarfirði tóku á móti trjánum sem gróðursett verða á lóð kjarnans þegar framkvæmdum við uppbyggingu og frágang lýkur.

Orkusalan kom færandi hendi á dögunum og afhenti Hafnarfjarðarbæ
grænar greinar Orkusölunnar en verkefnið er fyrst og fremst hugsað til
skemmtunar og vitundarvakningar. Grænu greinarnar koma frá gróðrarstöðinni
Kjarr og er um að ræða 40 birkitré sem sveitarfélagið mun sjá um að
gróðursetja á góðum stað. Væntanlegir íbúar á nýjum búsetukjarna í Hafnarfirði tóku á móti trjánum sem
gróðursett verða á lóð kjarnans þegar framkvæmdum við uppbyggingu og frágang
lýkur.

IMG_2774Hluti íbúa nýs búsetukjarna að Öldugötu 45 tekur hér á móti grænum greinum Orkusölunnar. Hér með bæjarstjóra, sviðsstjóra, forstöðumanni og starfsfólki búsetukjarna og fulltrúum Orkusölunnar. 

Orkuráðgjafar Orkusölunnar eru á ferðinni um landið og
afhenda öllum sveitarfélögum landsins greinar til gróðursetningar og mun
fyrirtækið gróðursetja til jafns við sveitarfélögin. Ákveðið hefur verið að
gróðursetja birkitrén við nýjan búsetukjarna fyrir fatlað fólk að Öldugötu 45 í
Hafnarfirði. Fyrsta skóflustungan að kjarnanum var tekin í lok september 2019
og er gert ráð fyrir að íbúðirnar afhendist fullbúnar vorið 2021. Um er að ræða
búsetukjarna með sex sérbýlum sem hönnuð eru samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar þar sem jafnrétti og vellíðan alls
fólks er haft að leiðarljósi við hönnun lausna. Birkitrén verða gróðursett við
húsið um leið og framkvæmdum við uppbyggingu og frágangi við lóð lýkur.

Hafnarfjarðarbær þakkar Orkusölunni fyrir grænu greinarnar.

Sjá tilkynningu frá fyrstu skóflustungunni: Framkvæmdir hefjast við nýjan búsetukjarna

Ábendingagátt