Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær er í hópi þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA, hreyfiaflsverkefnis FKA, árið 2022 en hana hljóta þeir sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi í a.m.k. 40/60. Ráðstefnan Jafnrétti er ákvörðun og viðurkenningarhátíð fóru fram í beinni útsendingu á RÚV í gær. 59 fyrirtæki, 6 sveitarfélög og 11 opinberir aðilar hlutu viðurkenningu í ár. Á árinu 2022 hafa 57 nýir þátttakendur bæst í hóp þeirra sem taka þátt í Jafnvægisvoginni.
Hafnarfjarðarbær var í hópi þeirra sveitarfélaga og fyrirtækja sem árið 2019 skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogar FKA (Félags kvenna í atvinnulífinu) og beita sér fyrir auknu kynjajafnvægi innan sinna vébanda næstu fimm árin.
59 fyrirtæki, 6 sveitarfélög og 11 opinberir aðilar hlutu viðurkenningu í ár. Kristín Sigrún Guðmundsdóttir mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd sveitarfélagsins.
Tilkynning á vef FKA
„Það er óhætt að segja þessi viðurkenning sé hrós í hnappagat sveitarfélagsins og afrakstur markvissrar innleiðingar á jafnræði, jafnvægi og fjölbreytileika innan mannauðs Hafnarfjarðarbæjar. Á aðeins þremur árum höfum við náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi sem verður að teljast góður árangur sérstaklega í ljósi þess að skólamálin og félagsmálin vega þungt innan sveitarfélagsins og þar hafa konur verið í miklum meirihluta í stjórnendastöðum. Við erum ánægð með árangurinn og munu halda vegferðinni ótrauð áfram“, segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Frábær árangur á meðal þátttakenda í Jafnvægisvog FKA
Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til fimmtíu og níu fyrirtækja, sex sveitarfélaga og ellefu opinberra aðila úr hópi þeirra 209 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim þátttakendum sem hafa náð markmiðunum um 23 á milli ára.
„Það hefur verið gaman að fylgjast með Jafnvægisvoginni stækka undanfarin ár og jafnréttismál verða að mikilvægu forgangsmáli hjá okkar þátttakendum. Þátttakendur taka stoltir við viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar og hafa verið duglegir að vekja athygli á jafnréttismálum innan sinna vinnustaða með ýmsum hætti. Því miður eru konur eingöngu 24% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi og hefur hlutfallið eingöngu farið upp um 3% á síðustu tíu árum. Ég er þó bjartsýn á að hlutfallið muni fara hraðar upp á næstu árum með aukinni vitundarvakningu meðal þeirra sem taka ákvörðun um ráðningar“ segir Thelma Kristín Kvaran, verkefnastjóri Jafnvægisvogarinnar.
Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið
Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Lundurinn er staðsettur við aðalinnganginn í Heiðmörk, Vífilsstaðamegin, og er það fyrsta sem fólk sér þegar það gengur inn í Heiðmörk. Í ár voru gróðursett 76 tré, eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa árið 2022. Valdar voru margar tegundir af trjám sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin er að stuðla að. Alls er búið að setja niður 173 tré í Jafnréttislundi á síðustu 3 árum. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.
Aðgengileg og skýr framsetning upplýsinga
Jafnvægisvogin heldur úti mælaborði sem er ætlað að halda utan um tölfræðilegar upplýsingar um jafnrétti. Þannig er hægt að tryggja aðhald og góða frammistöðu. Í mælaborði Jafnvægisvogarinnar koma fram allar helstu opinberar upplýsingar um stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og innan hins opinbera og þær gerðar aðgengilegar á einfaldan og skýran hátt.
Bætist í hóp fyrirtækja og sveitarfélag sem sjá sér hag í að vinna með Jafnvægisvoginni
Mikill vilji hefur verið hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum að vinna að jafnréttismálum þegar kemur að æðstu stjórnendum. Á árinu undirrituðu alls fjörutíu og sjö fyrirtæki, tvö sveitarfélög og átta opinberir aðilar viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar og bættust þar með í hóp þeirra sem undirrituðu á síðustu árum. Þátttakendur eru orðnir 209 þátttakendur talsins. Fjölbreyttur mannauður hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja sem og starfsánægju og frammistöðu í starfi, stuðlar að betri ákvarðanatöku og aukinni verðmætasköpun þar sem nýsköpun og vöxtur verður frekar í hópi fólks með ólíkar skoðanir og bakgrunn. Þátttakendur hafa þannig sýnt í verki að þau vilja virkja allan mannauðinn.
Eftirfarandi hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í ár:
Jafnrétti er ákvörðun | Fréttir | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is)
Sigríður Guðrún Jónsdóttir, dagmamma til 51 árs, stóð á starfsdegi dagforeldra með fangið fullt af blómum eftir ævistarfið sem litaði…
Hjarta Hafnarfjarðar skartar bleikum ljósum í tilefni þess að Bleikur október hefur hafið innreið sína. Hjartað var ekki aðeins skreytt…
Fundarröðin Við erum þorpið hefst 8. október í Bæjarbíói. Hún miðar að því að bregðast við stöðunni í samfélaginu og…
Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í innleiðingu á hugmyndafræðinni um opinn leikskóla á Íslandi. Félagasamtökin Memmm Play hafa starfrækt slíkan leikskóla…
Fánadagurinn var fyrst haldinn árið 2020 og hafa vinsældir framtaksins farið ört vaxandi. Hundruð fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga…
Austurgata 12, Venusarhús, er handhafi Snyrtileikans 2024. Þá var Rosa K. Moeller sæmd heiðursverðlaunum í þágu samfélagsins. Tíu íbúðahús fengu…
Öllum gefst færi á góðum félagsskap og að styrkja gott málefni á Lífskraftsdeginum sem haldinn verður þann 28. september næstkomandi…
„Þátttaka í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi er verndandi þáttur í lífi barna og ungmenna,“ segir fagstjóri forvarna- og frístundastarfs hjá…
Hamingjuna hefur verið víða að finna í Hafnarfirði í september. Fjölmargir viðburðir hafa liðið hjá en enn má hitta hamingjuna…
Andri Iceland stýrir hamingjustund í Bæjarbíói þriðjudaginn 24. september kl. 20. Fyrirlesturinn hans kallast: Hugsaðu um heilsuna. Lærðu að vera…