Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 29. janúar síðastliðinn kauptilboð í húsnæði Kænunnar að Óseyrarbraut 2. Fyrirtækið Matbær ehf. sem á og rekur Kænuna mun hafa fullt umráð yfir eigninni fram að afhendingu sem ráðgerð er 1. desember 2028.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 29. janúar síðastliðinn kauptilboð í húsnæði Kænunnar að Óseyrarbraut 2. Fyrirtækið Matbær ehf. sem á og rekur Kænuna mun hafa fullt umráð yfir eigninni fram að afhendingu sem ráðgerð er 1. desember 2028. Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og eigendur Matbæjar undirrituðu og handsöluðu kaupsamning rétt fyrir helgi.
„Við eiginkona mín, Helga Ösp Jóhannsdóttir, keyptum Kænuna í nóvember 2016 og hefur góður stígandi verið í rekstrinum. Árið 2024 var eitt besta ár í sögu Kænunnar,“ segir Oddsteinn Gíslason eigandi. Kænan hefur í gegnum árin sérhæft sig í þjóðlegum íslenskum heimilismat. Gestahópurinn er stór og fjölbreyttur, allt frá iðnaðarmönnum af höfuðborgarsvæðinu öllu til hópa af erlendum ferðamönnum sem vilja kynnast íslenskri matseld. „Það eru blendnar tilfinningar sem fylgja því að selja en það eru enn nokkur ár til stefnu. Við munum halda áfram að sinna gestum okkar allt fram að lokun,“ segir Oddsteinn. Kaupverðið er 265 milljónir kr. fyrir 324 m² húsnæði sem stendur á 2.363 m² leigulóð og tekur það tillit til rekstrarlokunar. Gert er ráð fyrir að Kænan verði í fullum rekstri fram að afhendingardegi.
Við afgreiðsluborðið. Valdimar Víðisson bæjarstjóri með þeim Helgu Ösp Jóhannsdóttur og Oddsteini Gíslasyni eigendum Kænunnar.
„Á Flensborgarhöfn liggur fyrir að byggja af stórhug til framtíðar meðal annars með uppbyggingu á nýjum og glæsilegum Tækniskóla. Slík umbylting kallar á breytingar og ákaflega ánægjulegt að ná að ganga frá samningi við Matbæ sem eigendur eru sáttir við,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri. Bygging nýs Tækniskóla í Hafnarfirði markar umbyltingu í aðstöðu til iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu. Með framkvæmdinni er nám og aðstaða efld til muna, allri starfsemi skólans komið fyrir á einum stað og brugðist við aukinni eftirspurn nemenda og þörfum atvinnulífsins. Fyrirhuguð er 30.000 fermetra bygging sem rúmar um 3.000 nemendur. Framkvæmdin verður í tveimur áföngum, í fyrri áfanga er byggð um 24.000 m2 bygging og í seinni áfanga um 6.000 m2 viðbót. Verklok eru áætluð haustið 2029. Þá er gert ráð fyrir frekari stækkunarmöguleikum á lóðinni í framtíðinni. „Þar til uppbygging á nýjum tækniskóla raungerist mun ég halda áfram að njóta þess að borða á Kænunni líkt og þúsundir annarra enda staðurinn í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Valdimar.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…