Hafnarfjörður er með hæstu frístundastyrkina

Fréttir

Hafnarfjörður er með hæstu frístundastyrkina árið 2020 eða 54.000 kr. á ári samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ á frístundastyrkjum hjá 16 sveitarfélögum landsins. Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 6-18 ára. 

Hafnarfjörður er með hæstu frístundastyrkina árið 2020 eða 54.000 kr. á ári samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ á frístundastyrkjum hjá 16 sveitarfélögum landsins.

Sjá frétt á vef ASÍ

Frístundastyrkir jafna tækifæri barna til tómstundaiðkunar
Mörg sveitarfélög styrkja tómstundastarf barna með svokölluðum frístundastyrkjum sem er yfirleitt ákveðin peningaupphæð á ári sem fylgir hverju barni og er ætluð til niðurgreiðslu á tómstundastarfi. Rannsóknir sýna að þátttaka í tómstundastarfi hefur áhrif á vellíðan barna og unglinga auk þess sem sýnt hefur verið fram á forvarnargildi tómstundastarfs og er það því hagur samfélagsins að börn hafi aðgang að slíku starfi. Tómstundir, hvort sem um er að ræða íþróttir, tónlistarnám eða annað, gegna því bæði því hlutverki að vera afþreying fyrir börn og unglinga auk þess að hafa menntunar- og forvarnargildi. Tómstundir geta verið dýrar og fjölskyldur eru í misjafnri stöðu til að greiða fyrir þær. Styrkirnir stuðla að því að börn geti tekið þátt í tómstundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum og jafna þeir tækifæri barna til tómstundaiðkunar.

Hæstu frístundastyrkirnir í Hafnarfirði
Af þeim 16 stærstu sveitarfélögum landsins sem úttektin nær til er Hafnarfjörður með hæstu styrkina, 54.000 kr. á barn en styrknum er skipt niður á mánuði þannig að mögulegt er að greiða tómstundir niður um 4.500 kr. á mánuði. Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 6-18 ára. Úttekt þessi nær eingöngu til frístundastyrkja sem foreldrar geta ráðstafað til að niðurgreiða tómstundir barna. Ekki er tekið tillit til annars konar stuðnings við tómstundastarf barna í formi lægra verðs á námskeiðum, ókeypis aksturs eða akstursstyrkja til foreldra sem keyra börn sín langan veg í tómstundir. Samanburðurinn nær til 16 stærstu sveitarfélaga landsins.

Ábendingagátt