Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær og UNICEF á Íslandi undirrituðu í dag samstarfssamning um innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Með samningnum hefur Hafnarfjarðarbær vinnu við að innleiða Barnasáttmálann og stefnir sveitarfélagið að því að hljóða viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.
Gleði og eftirvænting ríktu í Hafnarfirði í dag þegar Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, undirrituðu samstarfssamning. Með samningnum hefur Hafnarfjarðarbær vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og stefnir bæjarfélagið að því að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi. Með undirrituninni í dag skuldbinda fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar sig til þess að setja upp „barnaréttindagleraugun“ þegar verk- og ákvarðanaferli eru skoðuð og að forsendur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna gangi sem rauður þráður í gegnum þjónustu sveitarfélagsins.
„Þetta er mjög gleðilegt og jákvætt skref í þá átt að byggja upp breiðfylkingu sveitarfélaga á Íslandi sem láta sér mannréttindi barna varða, með Barnasáttmálann að leiðarljósi. Það hefur verið mikil eftirspurn frá sveitarfélögum landsins um stuðning við innleiðingu sáttmálans og við hjá UNICEF á Íslandi viljum gera það sem í okkar valdi stendur til að svara þeirri eftirspurn, “ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „Hafnarfjarðarbær er öflugt sveitarfélag sem sinnir þjónustu við stóran og fjölbreyttan hóp barna, við bindum miklar vonir við að samstarfið og hlökkum til að vinna með starfsmönnum og kjörnum fulltrúum bæjarins“, bætir hann við.
„Börn eru og verða alltaf í forgrunni hjá Hafnarfjarðarbæ og með þessum samning við UNICEF á Íslandi viljum við með markvissari hætti færa það sem við höfum verið að gera og viljum gera til framtíðar yfir í orð og ferla. Barnasáttmálinn er og verður okkar viðmið og rauður þráður í þjónustu okkar gagnvart börnum og fjölskyldum sveitarfélagsins. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn og þar spilar sveitarfélagið stórt hlutverk. Við viljum skapa samfélag þar sem börnum á öllum aldri líður vel og fái notið persónulegrar þjónustu, hvatningar og stuðnings upp í gegnum öll sín mikilvægu og mótandi vaxtarár. Ég hlakka til samstarfsins og þess að leggja enn frekur línurnar í þessum málaflokki“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar við undirritun samnings.
Sveitarfélög órjúfanlegur þáttur í innleiðingu Barnasáttmálans
Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, en það hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga um allan heim. Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og UNICEF á Íslandi styður sveitarfélögin í innleiðingu sinni á Barnasáttmálanum. Hafnarfjarðarbær verður þriðja sveitarfélagið til að nýta sér líkanið en Akureyri og Kópavogur eru einnig þátttakendur í verkefninu. Í kjölfar þess að Alþingi lögfesti Barnasáttmálann í febrúar 2013 hafa skapast umræður um hlutverk og ábyrgð íslenskra sveitarfélaga við innleiðingu sáttmálans. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna og umboðsmaður barna hafa bent á að sveitarfélög séu órjúfanlegur þáttur í innleiðingu hans. Þótt ríkisvaldið beri formlega ábyrgð á að uppfylla Barnasáttmálann verður hann aldrei innleiddur nema í samstarfi við sveitarfélögin. Það eru sveitarfélögin sem annast stærstan hluta þeirrar þjónustu sem hefur bein áhrif á daglegt líf barna.
Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna
Að sveitarfélag innleiði Barnasáttmálann þýðir að það samþykki að nota sáttmálann sem viðmið í starfi sínu og að forsendur hans gangi sem rauður þráður í gegnum þjónustu þess. Líkja má innleiðingunni við að starfsmenn og kjörnir fulltrúar sveitarfélagsins setji upp „barnaréttindagleraugu“ og rýni og skoði verk- og ákvarðanaferla með hliðsjón af sáttmálanum. Barnasáttmálinn er þannig nýttur sem gæðastjórnunarverkfæri í stefnumótun og þjónustu með tilliti til barna. Ferlið við að gerast barnvænt sveitarfélag krefst pólitískrar skuldbindingar, sem er grundvöllurinn fyrir innleiðingu Barnasáttmálans í sveitarfélaginu, ásamt samræmdum aðgerðum þvert á öll svið sveitarfélagsins.
Innleiðingarlíkan og viðurkenning
Innleiðingarlíkanið barnvæn sveitarfélög er aðgengilegt á vefsíðunni www.barnvaensveitarfelog.is og geta áhugasamir einstaklingar, kjörnir fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga nálgast þar allar nauðsynlegar upplýsingar um innleiðingu Barnasáttmálans. Sveitarfélög sem hafa áhuga á að hefja markvisst ferli við innleiðingu sáttmálans geta einnig skráð sig til þátttöku á vefsíðunni. Innleiðingarferlið tekur tvö ár og skiptist í 8 skref. Að því loknu geta sveitarfélögin sótt um viðurkenningu frá UNICEF sem barnvæn sveitarfélög. Viðurkenningin er háð því að starfsfólk UNICEF meti sem svo að innleiðingin hafi verið réttindum barna í sveitarfélaginu til framdráttar og unnið hafi verið eftir hugmyndafræði líkansins. Til að viðhalda viðurkenningunni þarf sveitarfélag að halda innleiðingunni áfram, setja sér ný markmið og óska eftir nýju mati að þremur árum liðnum.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Bergsteinn Jónsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi handsala hér samninginn.
Það er stór hópur sem kemur að innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hjá Hafnarfjarðarbæ og UNICEF.
Um UNICEF
UNICEF (Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna) hefur í tæpa sjö áratugi verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Við berjumst fyrir réttindum barna á heimsvísu og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og hefur að leiðarljósi þá bjargföstu trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og leggjum áherslu á að ná til allra barna – hvar sem þau eru.
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…
Nýsköpunarsetrið við Lækinn hefur fengið nýjan forstöðumann sem mótar nú starfsemina og stefnir á að vera kominn á fullt skrið…