Hafnarfjörður heilsueflandi samfélag

Fréttir

Hafnarfjörður varð i dag  formlegur aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson og Birgir Jakobsson landlæknir skrifuðu undir samstarfssamning.

Hafnarfjörður varð i dag  formlegur aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson og Birgir Jakobsson landlæknir skrifuðu undir samstarfssamning.

Í Heilsueflandi samfélagi er lögð áhersla á að vinna með fjóra meginþætti: Hreyfingu, næringu, líðan og lífsgæði

„ Þetta er spennandi verkefni sem miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Hafnarfjarðarbæjar með markvissum þverfaglegum heilsueflingaraðgerðum fyrir alla íbúa bæjarins „ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri.

Fyrsta skrefið er að fá þá skóla í Hafnarfirði sem ekki eru skráðir í verkefnið heilsueflandi skólar til að skrá sig til leiks og verða virkir í því.  Haldinn verður fundur  með skólasamfélaginu í Hafnarfirði þar sem fulltrúar þeirra skóla í bænum sem hafa verið að vinna að verkefninu heilsueflandi skóli munu kynna þá vinnu sem þeir hafa þegar lagt í.

Ábendingagátt