Hafnarfjörður í jólafötin

Fréttir Jólabærinn

Brátt kviknar á jólaandanum í Hafnarfirði. Sem fyrr stefnir allt í að aðventan verði ekki bara björt og fögur heldur einnig afar lífleg og fjörug. Hafnarfjörður er jólabærinn og hjartað, miðbærinn sjálfur, verður einstaklega fallegt. Hjartasvellið opnar föstudaginn 15. nóvember og Jólaþorpið í Hafnarfirði sama dag kl. 17.

Jólin koma, jólin koma – Já, þau nálgast

Allt stefnir í að aðventan verði ekki bara björt og fögur heldur einnig afar lífleg og fjörug. Hjartasvellið opnar föstudaginn 15. nóvember rétt eins og Jólaþorpið í Hafnarfirði. Við bíðum spennt en það opnar kl. 17.

Jólabærinn Hafnarfjörður hefur hin síðustu ár stimplað sig rækilega inn í hug og hjörtu Hafnfirðinga, ferðamanna og vina Hafnarfjarðar. Íbúar og fyritækjaeigendur hafa lagst á eitt, sett upp jólahúfuna og dregið djúpt að sér jólaandann og tekið þátt. Þúsundir hafa sótt jólabæinn okkar heim á aðventunni og upplifað allt það sem fallegi bærinn okkar hefur upp á að bjóða í formi heilsueflingar, menningar, lista, veitinga, verslunar og þjónustu.

Jólabærinn Hafnarfjörður litar lífið

Jólin eru jafnt og þétt að færast yfir Hafnarfjörð. Nú næstu daga vinnur starfsfólk bæjarins við uppsetningu á jólaskreytingum vítt og breytt um bæinn. Ný ljós og skreytingar munu bætast jafn og þétt við næstu daga og vikur.

Jólablað Hafnarfjarðar verður gefið út um miðjan nóvember og mun líkt og síðustu fjögur ár vera fullt af hlýlegu efni um gefandi og góð verkefni í bænum, framsækin hafnfirsk fyrirtæki og fólkið sem bæinn byggir.

Já, það er ekki aðeins Hjartasvellið og Jólaþorpið á Thorsplani með öll sín fagurlega skreyttu jólahús og jólagleði sem prýða jólabæinn. Hellisgerði er einnig í fullum undirbúningi. Þar verður veitingasala í höndum A. Hansen sem gera yndislegar fjölskyldustundir í lystigarðinum mögulegar.

Hvatning til íbúa og fyrirtækja í bænum

Daginn er tekið að stytta og tími jólaljósanna við það að renna upp hjá mörgum. Hafnarfjarðarbær hvetur Hafnfirðinga til að setja jólaljósin sem fyrst upp!

Starfsfólk bæjarins vinnur sig jafnt og þétt í gegnum bæinn og setur upp ljós á fjölförnum stöðum og opnum svæðum. Allt er þetta gert með það fyrir augum að gleðja augað og andann og ýta undir jákvæða upplifun og ánægju þeirra sem leið eiga um bæinn hvort sem er gangandi, hlaupandi, hjólandi eða akandi.

Klæðum Hafnarfjörð í hátíðargallann og tökum þátt!

Ábendingagátt