Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fjöldi þeirra sem hafa farið gangandi og hjólandi um Strandstíginn í mars er nú þegar meiri en allan marsmánuð í fyrra.
Samkvæmt teljara á Strandstígnum við Fjarðargötu eru Hafnfirðingar duglegir að hreyfa sig í samkomubanninu en gangandi vegfarendur á Strandstígnum í mars voru tvöfalt fleiri en á sama tíma á síðasta ári.
Teljararnir telja fjölda þeirra sem ganga eða hjóla um stíginn ásamt því að mæla hraða þeirra sem hjóla. Íbúar geta fylgst með umferðinni í bæjarvefsjánni Granna.
Regluleg hreyfing skiptir okkur miklu máli og sérstaklega á þessum óvenjulegu tímum. Íbúar sem eiga þess kost eru hvattir til þess að hreyfa sig þessa dagana t.d. með því að skella sér í göngu eða hjólreiðatúr um bæinn. Fjöldi göngu- og hjólastíga liggja um heilsubæinn Hafnarfjörð, áhugaverðir staðir sem tilvalið er að heimsækja leynast víða og í nærumhverfinu eru fjölmargir opnir leik- og sparkvellir.
Gönguteljari sem mælir fjölda ferða hjólandi og gangandi með því markmiði að fylgjast með umferð vegfaranda var settur upp á Strandstígnum í ágúst 2018. Umhverfis- og framkvæmdaráð hefur einnig sett upp teljara við helstu ferðamannastaði í landi Hafnarfjarðar og stefnt er að því að setja upp teljara við fleiri staði.
Hafnarfjarðarbær er þátttakandi í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðarinnar um teljara fyrir hjóla- og göngustígakerfi höfuðborgarsvæðisins. Settir hafa verið upp teljarar sem mæla fjölda ferða hjólandi og gangandi á völdum stöðum og áætlað er að setja upp fleiri víðar um höfuðborgarsvæðið og safna gögnum, m.a. um vaxandi samgönguhjólreiðar.
Fuglaflensa hefur greinst á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að fjarlæga dauða fugla. Meindýraeyðar þurfa staðsetningu…
Drög að nýrri umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð liggja fyrir. Kallað er eftir þátttöku íbúa í rýni á drögum og…
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum…
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…