Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Það var sannkallað stuð fyrir alla fjölskylduna í brakandi blíðu á glæsilegri hátíð í Hellisgerði í gær. Þar mátti heyra sögu um spennandi ævintýri bókaálfsins, grilla sykurpúða, spreyta sig í sirkus, búa til risa sápukúlur, skylmast, dansa og syngja við hressandi tóna með Benedikt Búálfi, Mæju jarðaber, Íþróttaálfinum og Kjalar, svo fátt eitt sé nefnt. Um garðinn allan mátti sjá fólk á öllum aldri í búningum, með álfaeyru og blóm í hárinu. Gróf talning gesta hljóðar upp á 3.000 manns
Það var sannkallað stuð fyrir alla fjölskylduna í brakandi blíðu á glæsilegri hátíð í Hellisgerði í gær, sunnudaginn 25.ágúst. Þar mátti heyra sögu um spennandi ævintýri bókaálfsins, grilla sykurpúða, spreyta sig í sirkus, búa til risa sápukúlur, skylmast, dansa og syngja við hressandi tóna með Benedikt Búálfi, Mæju jarðaber, Íþróttaálfinum og Kjalar, svo fátt eitt sé nefnt. Um garðinn allan mátti sjá fólk á öllum aldri í búningum, með álfaeyru og blóm í hárinu. Gróf talning gesta hljóðar upp á 3.000 manns. Það er því óhætt að segja að stemmningin og gleðin hafi verið allsráðandi í Hellisgerði í gær. Krakkar og kynlegir kvistir nutu þess að klífa hraunið, upplifa umhverfið og njóta samverunnar með fjölskyldu og vinum í garðinum fagra.
Hellisgerði er hrauni prýddur skrúðgarður í hjarta Hafnarfjarðar hvaðan Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar eiga góðar minningar og sögur síðustu áratugina. Garðurinn hefur frá upphafi þjónað mikilvægu samfélagslegu hlutverki sem grænt svæði, samverustaður og vettvangur upplifunar og leikja fólks á öllum aldri. Hellisgerði hefur hin síðustu ár stimplað sig inn sem heimur ljósadýrðar og ævintýra á aðventunni og hafa þúsundir gesta lagt leið sína í garðinn í aðdraganda jóla um leið og hið sívinsæla Jólaþorp í Hafnarfirði er heimsótt.
Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá hátíðinni í ár
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…