Hafnfirsk ungmenni standa sig vel

Fréttir

Spurt er um vímuefna, samskipti við foreldra, líðan, tómstundaáhuga og skjánotkun

Út er kominn skýrsla sem fjallar um neyslu
og venjur hafnfirskra ungmenna. Á hverju ári leggur fyrirtækið Rannsóknir og
greining spurningalistakönnun fyrir alla unglingadeildarnemendur landsins fyrir
Menntamálaráðuneytið. Hafnarfjarðarbær kaupir síðan skýrslu útúr þessari könnun
um þar sem hafnfirsk ungmenni er skoðuð sérstaklega og borin saman við
höfuðborgarsvæðið og svo landið allt. Um 900 unglingar tóku þátt í þessari
könnun og fjallar hún um fjölmarga áhugaverða þætti sem tengjast unga fólkinu. 

Spurt var um vímuefni, samskipti við foreldra, almenna líðan, tómstundaáhuga og
skjánotkun. Skemmst er frá því að segja að krakkarnir okkar eru að standa sig
betur en við sem eldri erum í flest öllum þáttum og vert að vera stolt af því.
En fyrir þessari kynslóð liggja aðrar hættur og áskoranir eins og mikið framboð
af rafsígarettum og marijúana sem ekki var áhættumengi þeirra sem á undan fóru. 

Könnunina má lesa í heild sinni hér

Ábendingagátt