Hamingjukvöld, hellir og sjóbað bíða þín í nýrri viku
Hamingjudagar í Hafnarfirði standa yfir þennan mánuðinn. Þeir gefa okkur tækifæri til að elta hamingjuna og hitta hamingjusamt fólk. Þrennir nýir viðburðir þessa viku.
Hamingjudagar í Hafnarfirði fyrir okkur öll!
Góð mæting og afar fín stemning hefur verið á viðburðum Hamingjudaga Hafnarfjarðar. Við erum heppin. Hátíðin er ekki búin og þrennir viðburðir bíða þessa vikuna.
Hamingjudagar í Hafnarfirði standa yfir þennan mánuðinn. Þeir gefa okkur tækifæri til að elta hamingjuna og hitta hamingjusamt fólk. Fjöldi viðburða verða nú í september sem efla andann, bæta líðan okkar og hvetja okkur til að auka lífsgæðin. Hópur fólks sem bíður eftir þér.
Og hvað er í boði þessa vikuna?
- Hamingjustund í Helli við Helgafell er mánudaginn 16. september klukkan 18:30 og 20:30.
- Hamingjukvöld í Bæjarbíói verður þriðjudaginn 17. september klukkan 20.
- HamingjuSjóbað við Langeyrarmalir er miðvikudaginn 18. september kl. 17.30
Sjá viðburðina alla hér.
Já, gjaldfrjálst og glöð á Hamingjudögum í Hafnarfirði. Hittum hamingjuna í Hafnarfirði.