Hamranes I – nýbyggingarsvæði
Nýtt deiliskipulag
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þ. 22. janúar sl. var samþykkt að auglýsa nýtt deiliskipulag í Hamranesi I, nýbyggingarsvæði, fyrir reiti 6, 10 og 11 og reiti 7, 8 og 9 og að málsmeðferð verði í samræmi við 41.gr skipulagslaga.
Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2, frá 07.02. – 20.03.2020. Tillögur má einnig sjá hér fyrir neðan:
- Skipulagsuppdráttur er nær til reitanna 6, 10 og 11 í Hamranesi
- Skipulagsuppdráttur er nær til lóðanna 7, 8 og 9 í Hamranesi
- Hamranes – greinargerð
Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagssviði. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 20. mars 2020.