Farsældarvikan er 9.-13. mars
Farsældarvikan er í næstu viku, 9.-13. mars. Hún er haldin á öllu höfuðborgarsvæðinu í samstarfi sveitarfélaganna ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólum og íþróttahéruðum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins. Fjölmargir viðburðir eru í hverjum skóla og sveitarfélagi í farsældarvikunni.
Börnin okkar fái viðeigandi hjálp
Öll börn eiga rétt á að blómstra og fá þá hjálp sem þau þurfa til að takast á við áskoranir lífsins. Farsældarlögin eiga að tryggja að börn fái aðgang að réttum stuðningi á réttum tíma.
Hér í Hafnarfirði hafa verið ráðnir níu tengiliðir í 20-75% stöðuhlutfall í grunnskólana sem bærinn starfrækir til að tryggja farsæld. Hlutverk þeirra er skýrt og samkvæmt lögum. Þeir eiga að vera leiðarvísir foreldra og barna í frumskógi úrræðanna, eða á sérfræðimáli; samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Þeir veita fjölskyldu upplýsingar um þjónustu, tryggja aðgang að frummati, styðja við samþættingu á fyrsta stigi þjónustu og koma upplýsingum áfram ef þörf er á samþættingu þjónustu á öðru stigi.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir að öll viljum við að börnin okkar fái tækifæri til að blómstra, sama hvaða áskoranir eru í gangi. „Með þessum úrræðum og sterkari samvinnu erum við að skapa umhverfi þar sem gripið er fyrr inn og fjölskyldur finna að það er hlustað og brugðist við.“
- Ný lendingasíða með öllum upplýsingum hefur verið sett í loftið. Þar má kynna sér ólíku úrræðin. Sjá hér.
Samvinna sérfræðinga fyrir börnin
Erla Björg Rúnarsdóttir, deildastjóri samþættrar þjónustu barna og ungmenna, segir farsældina kalla á mikla samvinnu þeirra sérfræðinga sem að málunum koma.
„Við þurfum að kynnast betur og samtvinna fagvitund okkar allra. Við vinnum í átt að því að grípa börn og fjölskyldur þeirra eins skjótt og auðið er.“ Það sé ekki nóg að þekkja börnin sem hver og einn vinnur með heldur þurfi starfsfólk að þekkja hvert annað og sjá og skilja hvað aðrir sérfræðingar koma með að borðinu. „Börnin eru í miðjunni og hjartað í kerfinu, við sérfræðingarnir eigum að hlúa að þeim og sjá til þess að barnahjörtun slái rétt og í takt við samfélagið.“
Erla segir innleiðingarhóp nú starfandi til að tryggja að starfsfólk þekki styrkleika í hverju úrræði. Farsældateymi séu í skólunum. „Við vinnum með fólk og þurfum alltaf að gera okkar besta með hverju og einu.“
Erla hvetur foreldra til að skoða úrræðalista Hafnarfjarðarbæjar. „Í framhaldi geta foreldrar sótt um þjónustuna í gegnum Mínar síður á vef Hafnarfjaðrarbæjar. Gerum þetta saman. Þannig vinnum við best.“
Mikill undirbúningur
Mikill undirbúningur hefur verið innan sveitarfélagsins til að tryggja að börnunum sé mætt. Hafnarfjörður er fyrst sveitafélaga til að ráða tengiliði farsældar í hærra hlutfall í öllum grunnskólum sveitarfélagsins. Bærinn leggur því fjármuni á móti þeim sem koma frá ríkinu til að styðja við innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
Hér í Hafnarfirði verður athyglinni beint að því að kynna úrræði sveitarfélagsins og tengiliði farsældar í Farsældarvikunni. Hafnarfjarðarbæ hefur lagt áherslu á tengiliði á þessu skólaári og unnið að því að efla þá í starfi. Fjölbreyttar kynningar verða í skólunum þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk fær kynningu á hlutverki tengiliðar farsældar. Sveitarfélagið hefur látið útbúa veggspjöld og bækling sem lögð verður áhersla á að hengja upp og dreifa.

Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 – Samvinna í þágu barna
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – Hafnarfjörður, Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Kjós – ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttahéruðunum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, efna til sameiginlegrar farsældarviku dagana 9.–13. mars 2026.
Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna. Lögin fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.
Farsæld barna verður ekki tryggð nema með virkri samvinnu. Það er sameiginleg ábyrgð allra þeirra sem koma að lífi barna að vera vakandi, bregðast tímanlega við og tryggja að mál fari í réttan farveg. Með skýrara verklagi og formlegum samráðsvettvangi í gegnum Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins hefur skapast sterkari grunnur fyrir markvissa samvinnu – þar sem enginn aðili vinnur einn, heldur saman að heildstæðum lausnum í þágu barnsins.