Hausthopp við Hraunvallaskóla

Fréttir

Nýr ærslabelgur og sá fjórði í Hafnarfirði hefur nú risið á lóð Hraunvallaskóla og geta nemendur við skólann og kátir krakkar á Völlunum og vonandi víðar notið þess að hoppa á belgnum á meðan veður leyfir. 

Hausthopp á nýjum belg á lóð Hraunvallaskóla

Nýr ærslabelgur og sá fjórði í Hafnarfirði hefur nú risið á lóð Hraunvallaskóla og geta nemendur við skólann og kátir krakkar á Völlunum og vonandi víðar notið þess að hoppa á belgnum á meðan veður leyfir.   

5O5A0920-vefÞað voru kátir krakkar sem nutu sín og sýndu flotta takta á nýja belgnum í blíðunni í morgun. 

Fjórði ærslabelgurinn í Hafnarfirði

Ærslabelgur á Víðistaðatúni var fyrsti belgurinn í Hafnarfirði og var hann opnaður í upphafi sumars 2019. Ærslabelgur á Óla Run túni var opnaður sumarið 2020 og belgur í Setbergi í upphafi sumars 2021. Nýr ærslabelgur á Völlunum í Hafnarfirði er þannig fjórði belgurinn. Þannig hafa fjórir ærslabelgir verið settir upp í Hafnarfirði á einungis tveimur árum og það innan mismunandi hverfa í bænum. Er fjölgunin í takti við vilja og óskir bæjarbúa.

0K1A2500-vefNýr ærslabelgur hefur risið á lóð Hraunvallaskóla

Breyttur opnunartími frá 1. september

Yfir sumartímann eru belgirnir opnir frá kl. 9 – 22 alla daga vikunnar. Frá og með 1. september eru belgirnir opnir frá kl. kl. 9 – 20 alla daga allt þar til frysta tekur. Viðmiðið er að hafa belgina opna meðan hægt er og það í takti við gildandi útivistarreglur sem gilda frá 1. september – 1. maí. Á þessu tímabili eiga 12 ára börn og yngri ekki vera úti eftir kl. 20 og 13 – 16 ára börn ekki eftir kl. 22. Ærslabelgirnir eru lokaðir yfir vetrarmánuðina eða eftir að frysta tekur. 

Ábendingagátt