Haustsópun í Hafnarfirði

Fréttir

Nú eru lauf farin að falla af trjám og haustsópun því við það að hefjast hjá bænum. Sópun gatna hefst mánudaginn 7. október og er ráðgert að henni ljúki 25. október. Hafist verður handa í úthverfum og endað í miðbæ Hafnarfjarðar. 

Sumar og haust er sannarlega búið að vera fallegt hér í Hafnarfirði og litirnir í náttúrunni sérlega fallegir. Nú eru lauf farin að falla af trjám og haustsópun því við það að hefjast hjá bænum. Í haustsópun er farið yfir allar götur bæjarins, þær sópaðar og reynt að ná sem stærstum hluta af laufmassanum sem hefur fallið síðustu daga og vikur.

Haustsópun í Hafnarfirði er skipt í fjórtán hverfi. Sópun gatna hefst 7. október og er ráðgert að henni ljúki 25. október. Úthverfi Hafnarfjarðar verða sópuð fyrst og endað í miðbæ Hafnarfjarðar. Miðbærinn mun verða sópaður vikulega á sunnudagsmorgnum fram að vetri. 

Ábendingagátt