Haustsýning Hafnarborgar 2019 – kallað eftir tillögum

Fréttir

Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að haustsýningu næsta árs í Hafnarborg. Haustsýning Hafnarborgar í ár, Allra veðra von, var valin úr athyglisverðum tillögum síðasta árs og var opnuð þann 31. ágúst sl.

Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að haustsýningu næsta árs í Hafnarborg. Haustsýning Hafnarborgar í ár, Allra veðra von, var valin úr athyglisverðum tillögum síðasta árs og var opnuð þann 31. ágúst sl.

Markmiðið með því að óska eftir innsendum tillögum er að fá tækifæri til að velja til samstarfs sýningarstjóra, sem leggur fram áhugaverða tillögu að sýningu, en jafnframt að kalla til leiks nýtt fólk. Þannig er sérstaklega hugað að því að veita tækifæri sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Það hefur sýnt sig að fyllsta ástæða er til að halda úti slíku verkefni en út frá því hafa orðið til fjölbreyttar og áhugaverðar sýningar, sem vakið hafa athygli og fengið góða aðsókn.

Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja verk listamanna en einnig koma til greina sýningar sem fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns. Jafnt koma til greina sýningar á verkum samtímalistamanna og sýningar sem fela í sér sögulega greiningu.

Frestur til að skila inn tillögum rennur út sunnudaginn 18. nóvember nk. Aðeins er tekið við tillögum rafrænt á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is.

Umsóknarferlið er tvískipt.

1. Hluti

Í fyrri umferð er óskað eftir eftirfarandi upplýsingum:

  • Lýsingu á verkefninu þar sem lögð er áhersla á hugmyndina að baki sýningunni (hámark 1000 orð).
  • Ferilskrá sýningarstjóra.
  • Stuttum ferilskrám listamanns/-manna og annarra sem lagt er til að verði hluti af sýningarverkefninu.

Vinsamlegast gefið eins nákvæma lýsingu og unnt er en virðið uppgefinn orðafjölda. Ekki er tekið við sýningarskrám, myndefni eða dvd-diskum í fyrstu umferð. Kynnið ykkur húsnæði Hafnarborgar áður en tillögur eru sendar inn. Listráð Hafnarborgar metur innsendar tillögur ásamt forstöðumanni og velur tillögur til frekari skoðunar.

2. Hluti

Sýningarstjórum sem eiga tillögurnar sem valdar eru til frekari skoðunar verður boðið að kynna hugmyndir sínar og senda inn ítarefni, s.s. sýningarskrár, myndefni eða dvd-diska, auk þess sem vinna þarf að raunhæfri fjárhagsáætlun fyrir sýninguna. Haustsýning næsta árs verður valin úr þessu úrtaki fyrir 10. desember nk.

Með því að kalla eftir tillögum er verið að opna fyrir nýja sýn á myndlist en jafnframt gefa nýjum sýningarstjórum tækifæri til að vinna sýningar. Reiknað er með að sýningin og vinnan við hana falli að fjárhagsáætlun safnsins eða að leitað verði leiða til að fá sérstakan stuðning við verkefnið.

Við mat á tillögum verður skoðað:

  • Val á listamönnum.
  • Hvort sýningin kynni nýstárlega sýn á myndlist – innihald og/eða miðla.
  • Hvort verkin á sýningunni eru ný eða eldri verk eða blanda nýrra og eldri.
  • Hvort sýningin hafi sérstaka skírskotun til Hafnarborgar, þ.e. safneignar, umhverfis, bæjarlífs o.s.frv.
  • Hvort sýningin nýti rými Hafnarborgar á frumlegan hátt.
  • Ferill sýningarstjóra (sérstaklega er leitað eftir sýningarstjórum sem ekki eiga langan feril að baki).
  • Tillögur að dagskrá í tengslum við sýninguna (leiðsögn, málþing, námskeið).
  • Tillögur að hugsanlegri útgáfu.
  • Að kostnaður við verkefnið sé innan viðráðanlegra marka (nánari útfærsla kostnaðar er í síðari hluta ferlisins).

Teikningar af sölum Hafnarborgar má sjá hér fyrir neðan. Þær eru ætlaðar til viðmiðunar við undirbúning tillagna en ekki er þess krafist að sýningar séu hannaðar nákvæmlega inn í rýmið.

Grunnmynd-af-öllum-sölum

Vinsamlegast sendið tillögur á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is. Send verður staðfesting á því að tillagan hafi borist. Hafa má samband í síma 585 5790 ef staðfesting berst ekki. Allar niðurstöður verða sendar með tölvupósti.

Tillögur skulu merktar „Haust 2019“.

Nánari upplýsingar í síma Hafnarborgar 585 5790.

Ábendingagátt