Haustsýning Hafnarborgar 2025 – kallað eftir tillögum

Fréttir

Frestur er til miðnættis 1. september. Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja verk listamanna (allt að átta talsins) en einnig koma til greina sýningar sem fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns.

Frestur til miðnættis 1. september

Líkt og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að haustsýningu næsta árs í Hafnarborg. Haustsýningaröðin hóf göngu sína árið 2011 en hingað til hafa fjórtán sýningar verið valdar úr miklum fjölda innsendra tillagna eftir sýningarstjóra með ólíkan bakgrunn og reynslu.

Markmiðið með því að óska eftir innsendum tillögum er að velja til samstarfs sýningarstjóra eða sýningarstjórateymi, sem leggur fram áhugaverða sýningartillögu, auk þess að vera vettvangur fyrir upprennandi sýningarstjóra til að koma hugmyndum sínum á framfæri.

Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja verk listamanna (allt að átta talsins) en einnig koma til greina sýningar sem fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns. Jafnt koma til greina sýningar á verkum samtímalistamanna og sýningar sem fela í sér sögulega greiningu.

Umsóknarferlið er tvískipt en í fyrri hluta er óskað eftir eftirfarandi upplýsingum

  • Lýsingu á verkefninu þar sem lögð er áhersla á hugmyndina að baki sýningunni (hámark 1000 orð).
  • Ferilskrá(m) sýningarstjóra.
  • Stuttum ferilskrám listamanns eða -manna, auk annarra sem lagt er til að verði hluti af sýningarverkefninu.

Frestur til að skila inn tillögum er til miðnættis sunnudaginn 1. september næstkomandi

Tekið er við tillögum í tölvupósti á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is en umsækjendur eru beðnir um að kynna sér umsóknarferlið vel á heimasíðu Hafnarborgar (sjá hér).

Tengiliðir fyrir fjölmiðla

Aldís Arnardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, aldisa@hafnarfjordur.is, s. 862 5340

Hólmar Hólm, kynningarfulltrúi Hafnarborgar, holmarh@hafnarfjordur.is, s. 663 1609

Ábendingagátt