Haustúthlutun menningarstyrkja 2023
Átta verkefni hlutu styrk í seinni úthlutun menningarstyrkja Hafnarfjarðarbæjar árið 2023. Afhending styrkja fór fram í hinu sögufræga húsi Bungalow þann 10. október síðastliðinn. Heildarupphæð styrkja í þessari seinni úthlutun var kr. 1.205.000.- Samtals hefur verið úthlutað 15.500.000.- kr. í styrki til menningarmála á árinu.
Úthlutun til menningarmála á árinu nemur kr. 15.500.000.-
Átta verkefni hlutu styrk í seinni úthlutun menningarstyrkja Hafnarfjarðarbæjar árið 2023. Afhending styrkja fór fram í hinu sögufræga húsi Bungalow þann 10. október síðastliðinn. Heildarupphæð styrkja í þessari seinni úthlutun var kr. 1.205.000.- Samtals hefur verið úthlutað 15.500.000.- kr. í styrki til menningarmála á árinu.
Verkefni sem eru líkleg til að auðga og dýpka listalíf bæjarins
Hafnarfjarðarbær hefur nú lokið úthlutun menningarstyrkja fyrir árið 2023. Átta verkefni hlutu styrk að þessu sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar.
Þessi fengu styrk í haustúthlutun menningarstyrkja 2023:
- Gunnella Hólmarsdóttir, Freyðijól 2023, 150.000 kr.
- Gylfi Ingvarsson, Gaflarakórinn, 170.000 kr.
- Kammerkór Hafnarfjarðar, Söngur fyrir líf og sál – verkin hans Friðriks, 75.000 kr.
- Harpa Gústavsdóttir, Kveikjum á kærleikanum, 160.000 kr.
- Heima hjá þér slf. Tælensk menningarhátíð, 100.000 kr.
- Kristbergur Óðinn Pétursson, Garðurinn og tíminn, 100.000 kr.
- Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Tónleikahald Lúðrasveitar Hafnarfjarðar haustið 2023, 150.000 kr.
- Rakel Björk Björnsdóttir, Mæja jarðaber syngur með krílum Hafnarfjarðar, 300.000 kr.
Hafnarfjarðarbær óskar styrkhöfum öllum innilega til hamingju!
