Heilbrigðiseftirlitið varar við að gosmóðu og gasmengun

Tilkynningar

Heilbrigðiseftirlitið vill vara við að gosmóða og gasmengun sem liggur nú yfir höfuðborgarsvæðinu en ríkjandi sunnanátt ber gosmengun til norðurs. Mun það ástand vara fram eftir degi en með aukinni úrkomu og vindi ættu loftgæði að batna eftir því sem líður á daginn.

Gosmóða yfir Hafnarfjarðarbæ

Tilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness vegna gosmóðu og gasmengunar frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð

 

Heilbrigðiseftirlitið vill vara við að gosmóða og gasmengun liggur nú yfir höfuðborgarsvæðinu en ríkjandi sunnanátt ber gosmengun til norðurs. Mun það ástand vara fram eftir degi en með aukinni úrkomu og vindi ættu loftgæði að batna eftir því sem líður á daginn. Gosmóða inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast m.a. í SO4 (súlfat) og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á  brennisteinsdíoxíði (SO2) en mælingar á fínna svifryki gefa vísbendingar um að þessi mengun sé til staðar. Nú í morgun mælast hækkuð gildi af fínna svifryki og einnig hækkuð gildi brennisteinsdíoxíðs sem berst frá eldgosinu.

Gosmóða eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins.  Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða. Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu.  Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum og ættu einnig að takmarka áreynslu utandyra. Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður.

Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:
  •   Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun
  • Ráðstafanir til varnar SO2 og annarri gosmengun mengun innandyra
  • Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr
  • Hækkaðu hitastigið í húsinu
  • Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra

Auk ofangreindra upplýsinga má finna ráðleggingar vegna heilsufarslegra áhrifa að völdum loftmengunar á síðu landlæknis: hér. Mælingar á loftgæðum eru aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar, hér, nánari leiðbeiningar um viðbrögð við styrk SO2 má fá með því að smella á tengil í vinstra horni síðunnar. Spár um gasmengun má sjá á vef Veðurstofunnar, hér en taka skal fram að hún tekur ekki til gosmóðu heldur aðeins beina mengun frá gosinu.

Ábendingagátt