Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Stella B. Kristinsdóttir er fagstjóri frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ og vinnur hún m.a. náið með frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum sem starfandi eru við alla grunnskóla í Hafnarfirði. Þátttaka í skipulögðu starfi ýtir bæði undir vellíðan og félagslega færni. Nær þetta bæði til starfs á vegum sveitarfélagsins og til fagstarfs og námskeiða allra félaganna í bænum.
Viðtal við Stellu B. Kristinsdóttur, fagstjóra frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ
Stella B. Kristinsdóttir er fagstjóri frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ og vinnur hún m.a. náið með frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum sem starfandi eru við alla grunnskóla í Hafnarfirði. Hún er ein þeirra sem heldur utan um skipulagningu á fjölbreyttu og skapandi sumarstarfi á vegum tómstundamiðstöðva í bænum. Þátttaka í skipulögðu starfi ýtir bæði undir vellíðan og félagslega færni. Nær þetta bæði til starfs á vegum sveitarfélagsins og til fagstarfs og námskeiða allra félaganna í bænum.
„Líkt og áður þá munum við bjóða upp á sumarfrístund fyrir 7-9 ára á vegum frístundaheimilanna. Námskeið verða í boði í öllum frístundaheimilum frá 14. júní til 2. júlí og aftur 4. – 23. ágúst sem er breyting frá því sem áður var en þá voru í boði tvö miðlæg námskeið á seinna tímabili fram að skólabyrjun. Dagana 5. júlí – 3. ágúst verður í boði miðlægt námskeið í Krakkabergi í Setbergsskóla þannig að það er eitthvað í boði á vegum frístundaheimilanna í allt sumar,“ segir Stella. Sumarfrístund inniheldur fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af skapandi verkefnum, leikjum, hreyfingu, spennandi ferðum, dorgveiði, sundferðum og sameiginlegum viðburðum. „Dagskrá getur verið breytileg eftir því hvaða frístundaheimili er valið og því um að gera að kynna sér dagskrána vel og jafnvel breyta til. Frístundaheimilin bjóða einnig uppá sumarfrístund fyrir útskriftarhópa leikskólanna í ágúst þar sem nýir nemendur fá tækifæri til að kynnast skólanum sínum, sínu frístundaheimili og nærumhverfi skólans með það að leiðarljósi að auka öryggi þeirra og vellíðan við upphaf skólagöngu“.
Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð, verður með myndlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára þar sem undirstöðuatriði myndlistar eru kynnt í gegnum rannsóknir á umhverfinu, sýningar í safninu og skapandi vinnu. Unnin verða verkefni í fjölbreytta miðla – teiknað, málað og mótað – með það að markmiði að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu barnanna.
Félagsmiðstöðvarnar í Hafnarfirði halda úti námskeiðum í júní fyrir börn sem voru að ljúka 4. – 7. bekk með það fyrir augum að viðhalda virkni þeirra í sumarfríinu, gefa þeim tækifæri á að hitta önnur börn og hafa áhugaverðar smiðjur til að sækja. Námskeiðin verða haldin í Lækjarskóla og Hvaleyrarskóla. „Hægt er að sækja mismunandi smiðjur, allt frá tónlistarsmiðju í tilraunaeldhús og geta börnin mætt eins oft og þegar þeim hentar í tvær vikur í senn. Námskeiðin hafa ekki verið aldursskipt en til skoðunar er að bjóða upp á sér námskeið fyrir 7. bekk til tilrauna í tvær vikur,“ segir Stella. Börnum í 4. til 7. bekk með sértæka stuðningsþörf stendur til boða að sækja Sumarklettinn þar sem unnið er með styrkleika og þarfir hvers og eins.
„Það skiptir miklu máli fyrir börn okkar og ungmenni að viðhalda einhverri virkni og félagsstarfi yfir sumartímann líkt og allt árið um kring og þá ekki síst þegar foreldrar og forráðamenn eru sjálfir í vinnu. Hafnarfjarðarbær, stofnanir, samtök og íþróttafélög í Hafnarfirði eru með fjölbreytt starf í gangi allt árið þannig að allir ættu að geta fundið ástundun við hæfi. Í fyrra og í ár höfum við í gegnum sumarstörf fyrir námsmenn búið til nýsköpunarstörf þar sem við reynum að auka aðgengi að tómstundum yfir sumartímann. Verkefnið hefur gengið út á það að draga úr einangrun yfir sumartímann með því að bjóða persónulega þjónustu og aðstoð við skráningar. Það tók gildi í sumar að hægt er að nota sérstakan styrk fyrir börn sem koma af tekjulægri heimilum á sumarnámskeið og fögnum við því að það sé verið að jafna tækifæri þeirra fjölskyldna til þátttöku í íþróttum eða sumarstarfi. Vinnuskóli Hafnarfjarðar er svo kjörinn vettvangur fyrir ungmenni frá 14 ára aldri. Fastur liður í tilverunni með útiveru og hressandi félagsskap jafnaldra. Með aukinni umhverfishugsun, sjálfbærni og áhuga hefur eftirspurn eftir fjölskyldugörðum Hafnarfjarðarbæjar farið vaxandi og er þar um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og aðra til að rækta sitt eigið grænmeti yfir sumartímann,“ segir Stella sem hvetur að endingu alla til að taka þátt í sumarlestri á vegum Bókasafns Hafnarfjarðar sem lýkur með uppskeruhátíð í sumarlok.
Greinin birtist í Fjarðarfréttum, 1. tbl. 19. árg. 26. maí 2021
Forsíðuljósmynd: Guðni Gíslason
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…