Heilsan í fyrsta sæti!

Fréttir

Heilsubærinn Hafnarfjörður siglir vel af stað inn í nýja árið og mun í ár, líkt og í fyrra, bjóða upp á fjölbreytta viðburði, heilsubótargöngur, jafningjafræðslu og aðra þjónustu sem miðar að því að efla og styrkja íbúa og starfsmenn á öllum aldri í vegferð sinni að líkamlegu og andlegu heilbrigði.

Heilsubærinn Hafnarfjörður siglir vel af stað inn í nýja
árið og mun í ár, líkt og í fyrra, bjóða upp á fjölbreytta viðburði,
heilsubótargöngur, jafningjafræðslu og aðra þjónustu sem miðar að því að efla og
styrkja íbúa og starfsmenn á öllum aldri í vegferð sinni að líkamlegu og
andlegu heilbrigði. Þessa dagana eru að berast inn á öll heimili í Hafnarfirði
bæklingar um ókeypis heilsufarsmælingar fyrir alla íbúa og starfsmenn sem
haldnar verða nú í janúar auk næringarsegla á ísskápa með hvatningu um neyslu á
fjölbreyttri fæðu í hæfilegu magni.

Vöxtur og vellíðan

Hafnarfjarðarbær byrjar nýtt á því að bjóða Hafnfirðingum og
öðrum gestum á vaxtar- og vellíðunarkvöld í hjarta Hafnarfjarðar í kvöld,
miðvikudaginn 9. janúar í Bæjarbíói.  Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir! Kvöldstundin felur í sér fræðslu, innsýn og
hvatningu tengda auknum vexti og vellíðan í eigin lífi og lífi fjölskyldunnar. Þátttakendur
fara heim með efni, dæmi um aðferðir og hvetjandi reynslusögur. Sjá upplýsingar um viðburð á heimasíðu eða Facebook

Ókeypis
heilsufarsmælingar í upphafi árs

SÍBS ásamt Samtökum sykursjúkra, Hjartaheill og Samtökum
lungnasjúklinga bjóða Hafnfirðingum ókeypis heilsufarsmælingu í samstarfi við
Heilsubæinn Hafnarfjörð og heilsugæsluna. Fagfólk frá heilsugæslunni verður á
staðnum og veitir ráðgjöf og eftirfylgd. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita,
blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka
þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum
heilbrigðs lífs. Skoða má niðurstöðurnar ásamt nafnlausum samanburði á lokuðu
vefsvæði með innskráningu gegnum island.is.  Mælingarnar fara fram laugardaginn 12. Janúar frá
kl. 11-16 í Verslunarmiðstöðinni Firði 1.hæð (þar sem Arion banki var) og laugardaginn 19. janúar í
Hraunseli, Flatahrauni 3.  Laugardagurinn 12. janúar frá kl. 11-16 í Firði  – sjá upplýsingar um mælingu á heimasíðu eða Facebook. Laugardagurinn 19. janúar frá kl. 11-16 í Hraunseli Flatahrauni 3 – sjá upplýsingar um mælingu á heimasíðu eða Facebook

Hugrún – geðfræðsla

Hafnarfjarðarbær hefur samið við Hugrúnu – geðfræðslufélag um
jafningjafræðslu í grunnskólum Hafnarfjarðar á vorönn 2019.  Munu fræðarar á vegum félagsins heimsækja
nemendur í 9. bekk og spjalla við þá á jafningjagrundvelli um m.a. kvíða,
þunglyndi, átraskanir, fíknisjúkdóma og þá erfiðu atburði sem upp geta komið í
lífi hvers og eins einstaklings. Svo sem það að missa ástvin, sambandsslit,
slys, sjúkdómsgreiningar og fleira. Samhliða er rætt um birtingarmyndir og
áhrif þessara þátta á m.a. líðan auk þess sem spjallað er um viðbrögð og mögulegar
aðferðir og leiðir til betrunar. Hugrún er félag stofnað af hópi háskólanema í
hjúkrunarfræði, læknisfræði og sálfræði sem hefur það að markmiði að auka þekkingu
ungs fólks á geðheilsu og geðheilbrigði.

Fræðsla um
heilbrigðan lífsstíl

Jóns Ragnar Jónsson tónlistarmaður
mun halda áfram heimsókn sinni til nemenda í áttundu bekkjum grunnskóla Hafnarfjarðar.
Fræðsla hans um heilbrigðan lífsstíl hefur hitt beint í mark og nú dregur hann
rafretturnar enn betur inn í umræðuna. Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar hefur
síðustu ár unnið að forvörnum gegn tóbaksneyslu barna og ungmenna og nú hefur
félagið gengið inn í Krabbameinsfélag Reykjavíkur og til varð Krabbameinsfélag
höfuðborgarsvæðisins. Áhersla hefur verið á munntóbaksforvarnir en nú mun rík
áhersla verða lögð á umræðu um rafrettur. Greinilegur mælanlegur árangur hefur
verið af þessu starfi. Jón Ragnar er í grunninn venjulegur hafnfirskur ungur
maður og afar góð fyrirmynd fyrir hafnfirsk ungmenni sem nær vel til þeirra. Unglingar
í 8. bekk lifa almennt mjög heilbrigðu lífi sbr. rannsóknir frá Rannsóknum og
greiningu og því er talið að jákvæðar og uppbyggilegar forvarnir eins og
heimsókn Jóns styrki þau í því að velja áfram heilbrigðan lífstíl.

Heilsubærinn Hafnarfjörður – heilsueflandi samfélag. Heilsustefna

Öll þessi verkefni og fleiri til eru liður í heilsueflingu
Hafnfirðinga og tala í takt við þá heilsustefnu sem sveitarfélagið mótaði 2016.
Í heilsustefnunni er eitt aðalmarkmiðið að hlúa að almennri vellíðan íbúa,
andlegri og líkamlegri, á öllum aldri og styrkja og efla sjálfsmynd og góða
líðan. Heilsustefnan styður við þá sýn Hafnarfjarðarbæjar til framtíðar að auka
vellíðan íbúa bæjarins með fyrirbyggjandi aðgerðum.

Heilsustefnu Hafnarfjarðar er að finna HÉR

Ábendingagátt