„Heima er þar sem hjartað slær“

Fréttir

Síðustu helgi opnaði sýningin „Heima er þar sem hjartað slær“ í aðalsal Bókasafns Hafnarfjarðar. 

Verkefnið er unnið í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og snýr að upplifunum kvenna á hugmyndinni um heimili, þvert á þjóðerni. Allar eiga þær konur sem taka þátt sameiginlegt að hafa verið á faraldsfæti og haldið heimili í fleiri en einu landi og snýr sýningin að hugmyndinni um tíma, rúm og hvað það er að vera heima.

HETSHS2_1629301042853

Tólf konur, undir handleiðslu listakvennanna Önnu Maríu Cornette og Gillian Pokalo, hafa hannað klukkur sem eru gerðar með blöndu af silkiprenti, akrýl og pennum á krossvið. Verkin ásamt hugleiðingum um myndval skrýða nú glugga bókasafnsins. Ásamt þessum verkum eru einnig klukkur sem gerðar voru í Bandaríkjunum og Reykjanesbæ þegar að vinnustofunar voru fyrst haldnar í samvinnu við Heimskonur í Reykjanesbæ

Sýningin stendur til 3. september n.k. og eru allir hjartanlega velkomnir.

Ábendingagátt