Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í ár eru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar hvattir til að fagna þjóðhátíðardegi með óvenjulegum og öðruvísi hætti.
Grillum í garðinum heima og skemmtum okkur innanbæjar
Í ár eru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar hvattir til að fagna þjóðhátíðardegi með óvenjulegum og öðruvísi hætti. Hafnarfjarðarbær mun í ljósi þeirra takmarkana sem í gangi hafa verið síðustu vikur og mánuði ekki blása til sameiginlegrar hátíðar eins og venjan er heldur hvetja íbúa til að halda sína eigin heimahátíð. Sveitarfélagið leggur þó sitthvað af mörkum til hátíðarhaldanna og mun bjóða upp á óvæntar en ótímasettar uppákomur víða um bæinn.
Málum Hafnarfjörð í fánalitunum
Þjóðhátíðardegi verður fagnað á óvenjulegan og öðruvísi máta í Hafnarfirði í ár og þá ekki síst í ljósi þess að landinn býr enn við takmarkanir og ríkur vilji fyrir því að vera áfram til fyrirmyndar í forvörnum og almannavörnum. Þannig eru íbúar hvattir til að grilla í garðinum heima og skemmta sér innanbæjar. Fastir liðir eins og fánahylling og heimsóknir á heimili og sjúkrastofnanir með flutning á íslenskum dægurperlur munu halda sér auk þess sem söguskilti við Fríkirkjuna á Austurgötu verður opnað. Íbúar eru einnig sjálfir hvattir til að skjóta upp fána, flagga eða setja fána í næsta glugga eða blómapott. Heppnir íbúar munu einnig upplifa óvæntar uppákomur víða um bæinn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Listahópur Vinnuskólans, álfar og ævintýrapersónur munu troða upp og skemmta þeim sem á vegi þeirra verða. Opið verður á söfnum og í sundlaugum sveitarfélagsins og er sem fyrr frítt inn á öll söfn og frítt í sund fyrir 17. ára og yngri. Ísbíllinn verður á ferð um hverfin og muni ís verði í boði fyrir börnin.
https://www.youtube.com/watch?v=lsoh1QWyh7I
Heilsueflandi hugmyndir að skemmtun á heimavelli
Sjá nánar hér
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…