Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar verður haldin á Bókasafni Hafnarfjarðar 30. ágúst til 1. september. Þar munu ævintýrin gerast.
Búist er við hundruð ef ekki á annað þúsund þegar gestum og gagnandi er boðið að stíga inn í ævintýraheim búninga- og leikjasamkomunnar Heimar og himingeimar. Hátíðin er haldin á Bókasafni Hafnarfjarðar 30. ágúst til 1. september.
„Búningabransinn snýst um að gefa skít í staðalímyndir. Stíga úr raunveruleikanum og inn í ímyndaðan heim, mótaðan og sniðinn eins og hver og einn kýs,“ segir Unnur Helga Möller, verkefnastjóri viðburða hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Hún er stórhuga og ætlar með hópunum sjö sem standa að hátíðinni að endurbyggja Star Wars geimskip á fyrstu hæðinni og setja upp fantasíukrá á þeirri þriðju. Og það er ekki allt.
„Rimmugýgur verður fyrir utan bókasafnið með víkingabardaga, Hema Reykjavík verður með sögulegar skylmingar og Geislasverðafélagið mætir með geislasverðin sín. Þau ætla svo að slást við Darth Vader, sem fólk þekkir náttúrulega úr Star Wars,“ segir Unnur Helga.
Viðburðurinn stendur í þrjá daga. Margt að sjá og sem hægt er að taka þátt í. Smiðjur verða alla dagana. Þar má m.a. læra að búa til sverð og búninga, taka cosplay-ljósmyndir og skrifa í miðaldastíl. Keppt verður um bestu búningana í Cosplay þann 31. ágúst. Yfirdómari er sigurvegari NCC Iceland keppninnar, Jessica Chambers, sem dæmir í þremur flokkum, ungliða-, opnum og fyrir lengra komna.
„Keppnin er opin öllum og flokkarnir þrír til að tryggja sanngjarnt mat á mismunandi stigum kunnáttu og reynslu,“ segir Unnur Helga.
Unnur Helga Möller er hryggjarstykkið í hátíðinni Heimar og himingeimar sem haldnir verða á Bókasafni Hafnarfjarðar 31. ágúst til 1. september. Sjón er sögu ríkari.
Boffervopnasmiðja verður sett upp, en þau eru einnig kölluð frauðvopn eða larp-vopn. Þá verður hægt að taka þátt í smiðju þar sem Larp-galli er gerður á korter. „Hægt er að skrá sig og stíga á vígvöll þar sem barist er með larp-vopnunum, bæði fyrir börn og fullorðna,“ segir hún.
Unnur segir búningasamfélagið eitt það skemmtilegasta sem til er. Stórir hópar eigi sér annað líf í búningunum enda stígi það úr raunveruleikanum inn í veruleika sem sé mótaður af þeirra hugmyndum.
„Búningabransinn snýst um að gefa skít í staðalímyndir,“ segir hún. „Og þú þarft ekki að vera í nördadóti eins og við hin, ef þú vilt vera Kate Bush eða beint úr Flashdance er það í góðu lagi. Lífið er leiksvið, fötin skapa manninn, og maðurinn er aldrei of gamall til að leika sér,“ segir hún en sjálf hefur hún spilað spunaspil frá sextán ára aldri og verið í búningabransanum í um áratug.
„Þetta er svo gaman og til hvers að gera eitthvað ef það er ekki gaman? “ spyr Unnur.
„Komdu og vertu með! Við ætlum að missa okkur í öllu sem er skemmtilegt við búninga: Allt frá kvikmyndabúningum til Larp-fantasíuklæðnaðs, til sögulegar endursköpunar. Japanskt cosplay, leikmunagerð, buffer-vopn, sögulegar skylmingar, geislasverðaskylmingar …bara allt og þú ert velkominn með!“
Og að sjálfsögðu þarf ekki að taka fram að allir, já, öll eru hvött til að mæta í búningum!
„Þetta hefur verið draumur hjá mér síðan ég var krakki,“ segir Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður sem hefur ásamt eigendum Sydhavn blásið…
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.