Heimar og himingeimar fá 700 þúsund í styrk
Heimar og himingeimar, búninga- og leikjasamkoma sem haldin verður á bókasafni Hafnarfjarðar 29.-31. ágúst, hlaut 700 þúsund krónur styrk úr Barnamenningarsjóði við síðustu úthlutun.
Heimar og himingeimar á bókasafninu
Heimar og himingeimar, búninga- og leikjasamkoma sem haldin verður á bókasafni Hafnarfjarðar 29.-31. ágúst, hlaut 700 þúsund krónur styrk úr Barnamenningarsjóði við síðustu úthlutun. „Þetta skiptir sköpum. Við getum byggt meira, gert meira og staðið enn styrkari að þessum viðburði,“ segir Unnur Helga Möller, verkefnastjóri viðburða hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Hátíðin verður nú haldin í annað sinn á bókasafninu en hún fór langt framúr væntingum í fyrra og yfir fjögur þúsund gestir mættu. Hátíðin verður enn veglegri í ár.
Meðal 47 verkefna sem fengu styrk
Úthlutunin úr Barnamenningarsjóði fyrir árið 2025 fór fram á Degi barnsins þann 25. maí. Sjóðurinn styrkir samtals 47 fjölbreytt verkefni í ár um alls rúmar 100 milljónir króna. Sjóðnum bárust 138 umsóknir fyrir tæpar 450 milljónir, samkvæmt vef Stjórnarráðsins. Þar segir að aldrei hafi fleiri umsóknir borist. Þriggja manna fagráð hafi fjallaði um innsendar umsóknir í sjóðinn og ráðherra menningarmála svo samþykkt tillögu stjórnar sjóðsins um úthlutun.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Guðný Hilmarsdóttir, formaður stjórnar Barnamenningarsjóðs, ávörpuðu fulltrúa styrktra verkefna við úthlutunarathöfnina sem haldin var hátíðleg í Höfuðstöðinni.
Þrjár barnamenningarhátíðir á landsbyggðinni hljóta að þessu sinni hæstu styrkina, 5,5 milljónir króna hver. Barnamenningarhátíðin Þræðir á Austurlandi, Púkinn, hafið og sólmyrkvinn á Vestfjörðum og Barnamenningarhátíð Vesturlands 2025. Pera Óperukollektif fær 5 milljónir króna í sinn hlut fyrir barnadagskrá með virkri þátttöku barna á Óperudögum.

Þriggja daga hátíð
Heimar og Himingeimar er samkoma búningaáhugafólks og fólks í búningaíþróttamennsku til að kynna og upphefja jákvæða og þroskandi leikhegðun fyrir fólk á öllum aldri. Staðið er að heilli helgi af skemmtun, sköpun, keppnum, smiðjum og kynningum auk námskeiða í aðdraganda samkomunnar. Maðurinn er aldrei of gamall til að leika sér, skapa og gera lífið skemmtilegra og nota ímyndunaraflið til að ferðast bæði um heima og himingeima.
- Boðið er upp á fimmtán smiðjur til að undirbúa leikana sjálfa. Sú næsta er 5. ágúst milli kl. 17-18.45 á bókasafninu.
Já, njóttu þessa draumaheims með okkur!