Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Haustsýning Hafnarborgar 2015 er sýningin Heimurinn án okkar
Haustsýning Hafnarborgar 2015 er sýningin Heimurinn án okkar. Á sýningunni eru verk eftir myndlistarmennina Björgu Þorsteinsdóttur, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Finn Jónsson, Gerði Helgadóttur, Mörtu Maríu Jónsdóttur, Ragnar Má Nikulásson, Steinu og Vilhjálm Þorberg Bergsson sem öll eiga sér ólíkan bakgrunn í íslensku myndlistarlífi.
Á sýningunni er teflt saman verkum íslenskra listamanna af ólíkum kynslóðum sem vinna með hugmyndir um alheiminn í verkunum á sýningunni. Í þeim er varpað ljósi á ákveðna þætti alheimsins hvort sem um er að ræða nærumhverfi eða víðara samhengi, micro eða macro.
Á sýningartímabilinu verður boðið upp á leiðsagnir með þátttöku listamannanna, þá fyrstu sunnudaginn 30. ágúst kl. 15. Þá mun Steina ræða við gesti um list sína og fjölbreyttan feril en hún er frumkvöðull á sviði raf- og vídeólistar á heimsvísu. Jafnframt verður efnt til málþings fimmtudaginn 24. september kl. 20.
Sýningarstjórar eru Aðalheiður Valgeirsdóttir myndlistamaður og listfræðingur og Aldís Arnardóttir listfræðingur en hugmynd þeirra að sýningunni var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu í safninu 2015.
Sjá nánar um sýninguna hér (Opnast í nýjum vafraglugga) .
Heimurinn án okkar er fimmta sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. Áður hafa verið settar upp, sem hluti af sama verkefni, sýningar Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur mannfræðings, Í bili, haustið 2011, sýning Guðna Tómassonar listsagnfræðings, SKIA, haustið 2012, sýning Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts, Vísar-húsin í húsinu, haustið 2013 og sýning Helgu Þórsdóttur, Rás, haustið 2014. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist fær notið sín mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Hafnarborg kallar nú eftir tillögum að haustsýningu árið 2016. Frekari upplýsingar um má nálgast á heimasíðu Hafnarborgar: www.hafnarborg.i (Opnast í nýjum vafraglugga)
Sigríður Guðrún Jónsdóttir, dagmamma til 51 árs, stóð á starfsdegi dagforeldra með fangið fullt af blómum eftir ævistarfið sem litaði…
Hjarta Hafnarfjarðar skartar bleikum ljósum í tilefni þess að Bleikur október hefur hafið innreið sína. Hjartað var ekki aðeins skreytt…
Fundarröðin Við erum þorpið hefst 8. október í Bæjarbíói. Hún miðar að því að bregðast við stöðunni í samfélaginu og…
Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í innleiðingu á hugmyndafræðinni um opinn leikskóla á Íslandi. Félagasamtökin Memmm Play hafa starfrækt slíkan leikskóla…
Fánadagurinn var fyrst haldinn árið 2020 og hafa vinsældir framtaksins farið ört vaxandi. Hundruð fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga…
Austurgata 12, Venusarhús, er handhafi Snyrtileikans 2024. Þá var Rosa K. Moeller sæmd heiðursverðlaunum í þágu samfélagsins. Tíu íbúðahús fengu…
Öllum gefst færi á góðum félagsskap og að styrkja gott málefni á Lífskraftsdeginum sem haldinn verður þann 28. september næstkomandi…
„Þátttaka í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi er verndandi þáttur í lífi barna og ungmenna,“ segir fagstjóri forvarna- og frístundastarfs hjá…
Hamingjuna hefur verið víða að finna í Hafnarfirði í september. Fjölmargir viðburðir hafa liðið hjá en enn má hitta hamingjuna…
Andri Iceland stýrir hamingjustund í Bæjarbíói þriðjudaginn 24. september kl. 20. Fyrirlesturinn hans kallast: Hugsaðu um heilsuna. Lærðu að vera…