Heita­vatns­laust í Hafnarfirði og víðar frá kvöldi 8. nóvember

Tilkynningar

Vegna viðgerðar á Suðuræð verður heitavatnslaust í Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði, Kópavogi og Breiðholti frá kl. 22 miðvikudaginn 8. nóvember til kl. 7 fimmtudagsmorguninn 9. nóvember.

Heitavatnslaust er vegna viðgerðar

Vegna viðgerðar á Suðuræð verður heitavatnslaust í Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði, Kópavogi og Breiðholti frá kl. 22 miðvikudaginn 8. nóvember. Stefnt er að því að heitu vatni verði aftur hleypt á um fimm tímum síðar og búast veitur við því að fullur þrýstingur verði kominn aftur á hjá öllum íbúum á svæðinu um kl. 7 fimmtudagsmorguninn 9. nóvember.

Sjá kort

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur. Einnig er húseigendum bent á að huga að innanhússkerfum. Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.

Framkvæmdasíða verkefnisins með uppfærðum upplýsingum

Ábendingagátt